Gular og appelsínugular viðvaranir vegna sunnanstorms og hríðar taka gildi víða um land síðdegis og í kvöld. Fyrst á Suðausturlandi og svo á Norðaustur- og Norðvesturlandi. Þar verður varasamt ferðaveður vegna hvassviðris og snjókomu.
Verst verður veðrið á Tröllaskaga og Skagafirði en þar verður ekkert ferðaveður í kvöld og í nótt og fólk hvatt til að huga að lausamunum. Þar gæti slegið í storm með vindhviðum allt upp í 40 metra á sekúndu áður en lægir og dregur úr úrkomu í nótt.
Þá verður talsverð ofankoma um tíma á suðvesturhorninu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Vegagerðin vara meðal annars við erfiðum akstursskilyrðum á Hellisheiði og Þrengslum síðdegis.