Sömuleiðis hefur gul viðvörun verði gefin út í kvöld fyrir Norðurland eystra, miðhálendi og Suðausturland.
Lögreglan varar við því að það gæti orðið blint á Hellisheiði og í Þrengslum síðdegis og með fylgi erfið akstursskilyrði, einkum á milli klukkan 14 og 17.
„Snýst í ákveðna suðlæga átt eftir kl 21 í kvöld með skammvinnri hríð á fjallvegum á vestanverðu landinu og slær í storm með snörpum vindhviðum yfir 40 m/s við fjöll á Tröllaskaga og í Skagafirði. Lægir og dregur úr úrkomu í nótt,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Endi ekki endilega sem snjókoma
Veðurstofan færði gula veðurviðvörun sem gefin hafði verið út fyrir Strandir og Norðurland vestra yfir í appelsínugula fyrir skömmu og tekur hún gildi klukkan 22 í kvöld.
„Það eru líkur á því seinni partinn að það snjói svolítið um tíma og þá gæti farið þyngst á Suðvesturlandi. Það er lægð að ganga yfir landið og nýjustu spár gera ráð fyrir því að það gangi í ansi slæmt veður seint í kvöld á Mið-Norðurlandi og Norðvesturlandi,“ segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofunni.
Samt megi ekki endilega búast við snjóþyngslum næstu daga. „Það er einhver snjókoma í þessu en það er líka bara mjög hvasst.“
Vindhviður á Norðurlandi geti staðbundið náð allt að 40 metrum á sekúndu í miðað við núverandi spá.
„Þessi lægð er lítil um sig og það þarf lítið að breytast til að spár breytist mikið en við erum samt að skoða málið.“
Versta veðrið verði á miðju Norðurlandi og í Skagafirði í kvöld.
„Síðan verður leiðindaveður seint í nótt og fyrramálið kannski á Vestfjörðum en það ætti nú að draga hratt úr því. Það er líka leiðindaóvissa um snjókomuna á höfuðborgarsvæðinu á eftir, ef hún skilar sér þá gæti hún valdið vandræðum.“
Svo þetta verður þá frekar mikil snjókoma?
„Úrkomutegundin er svolítið óviss. Ef þessi úrkoma skilar sér sem snjókoma þá gæti færðin þyngst. Síðan verður mun rólegra veður á morgun,“ segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.