Rætt verður um öryggismál á sjó í fyrri hluta Vikulokanna í dag. Þrír af sautján skipverjum á Jökli SÞ fórust þegar skipið sökk á miðvikudagskvöldið. Viðmælendur verða:
- Þröstur Leó Gunnarsson, leikari og sjómaður
- Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna
- Stefán Smári Skúlason, kennari við Slysavarnaskóla sjómanna
Í öðrum hluta þáttarins verður svo rætt um netárásir annars vegar og hótanir og ofbeldi gagnvart lögreglumönnum hins vegar. Viðmælendur þar verða
- Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarna ríkislögreglustjóra
- Helgi Hrafn Gunnarsson, forritari og fyrrverandi þingmaður
Ingvar Þór Björnsson er umsjónarmaður Vikulokanna sem má horfa á í spilaranum hér að ofan. Þátturinn hefst klukkan 11 og er í loftinu til 12:20.