Það er grundvallaratriði varðandi rekstur lítilla búða úti á landi, t.d. bókabúða, að fá ferðamannastrauminn, ekki síst frá skemmtiferðaskipunum, yfir sumartímann. Í ár og í fyrra varð merkjanlega vart við samdrátt vegna nýrrar skattheimtu á farþega skemmtiferðaskipa. Ingimar Jónsson, forstjóri Pennans, segir skattlagninguna á skemmtiferðaskipin vera í engu samræmi við gistináttaskattinn á hótelum. Ingimar er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins.
Ingimar Jónsson forstjóri Pennans: Áttfalt hærri skattur í skemmtiferðaskipi en á hóteli fyrir fjögurra manna fjölskyldu