Jónína Þórunn Hansen átti pláss á síðasta túr Jökuls ÞH sem sökk á miðvikudagskvöld, en tilviljun réði því að hún sat heima og slapp við ósköpin.
Þrír skipverjar fórust í skipsskaðanum en fjórtán komust lífs af.
Jónina sigldi á Jökli í nokkrar vikur þegar það gerði út frá Grænlandi fyrir nokkrum árum, þá undir nafninu Nanoq.
„Vorum þar á línu. Og þetta er nú eitt besta sjóskip sem ég hef farið á. Það var bara svo stöðugt þegar ég var á því og maður fann aldrei hreyfingar eða neitt,“ segir Jónína.
Hún hefur ekki siglt með skipinu frá Íslandi.
„Hefði ég farið þennan örlagaríka túr hefði það verið í fyrsta skipti síðan ég var á Grænlandi.“
Tapaði bátnum sínum fyrir tveimur vikum
Sem fyrr sagði var það tilviljun að Jónína var ekki um borð á miðvikudag. Smábátur hennar og eiginmanns hennar sökk í höfn í Sandgerði fyrir rúmum tveimur vikum.
„Bryggjan hún bara tætist og fingurnir á flotbryggjunni stingast inn í bátinn hjá mér,“ segir Jónína.
„Nokkrum dögum eftir það tek ég þá ákvörðun að mér var bara ekki unnt að fara út af gangi tryggingamála og annað slíkt. Hrannar [skipstjóri Jökuls], hann skildi vel það sem ég hafði lent í. Hann sagðist geta örugglega reddað öðrum stýrimanni.“
Veist þú hvernig fór fyrir þeim sem leysti þig af?
„Hann er held ég látinn í dag sá maður.“
Það var Aðalsteinn Steinþórsson, 59 ára, frá Húsavík.
Heldur þú að aðrir skipstjórar hefðu sýnt þér skilning?
„Já, ég held að flestir hefðu gert það. Það er svo skrýtið með sjómenn að þegar eitthvað kemur upp á, eins og þarna með Jökul og svo með bátinn minn að sökkva og annað slíkt, þá skilja menn tilfinningarnar á bakvið það. Það er bara þannig í sjómannsstéttinni. Það er engum sama þegar eitthvað svona kemur upp á.“
Bróðir Jónínu, Theódór K. Hansen heitinn, var einn af ellefu skipverjum sem voru um borð í Tungufoss þegar skipið sökk árið 1981. Öllum skipverjum Tungufoss var bjargað af breskum björgunarsveitum.
Sonurinn bað hana að fara ekki
Hvernig leið þér á miðvikudagskvöld þegar fréttir fóru að berast af Jökli?
„Það var skelfilegt að horfa upp á þetta. Þetta tekur á alla. Það er svo skrýtið með yngsta son minn... Hann var mjög ósáttur við að ég ætlaði að fara þessa ferð. Hann hefur aldrei verið það áður. Hann bað mig ítrekað um að hætta við.“
Finnst þér eins og það hafi verið einhver örlög að þú hafir ekki farið?
„Já. Mér finnst einhver hafa tekið fram fyrir hendurnar á mér. Þetta lítur þannig út. Þetta er bara þannig.“
„Maður finnur sársaukann“
Jónína segist sjálf aldrei hafa haft neinar áhyggjur af öryggismálum í skipinu.
„Aldrei nokkurn tímann. Mér leið bara mjög vel um borð í því skipi og mér fannst það mjög öruggt. En eins og maður segir þá gera slysin aldrei boð á undan sér og maður veit aldrei sinn næturstað.“
Hún hefur hugsað mikið til skipverja Jökuls síðustu daga.
„Maður finnur sársaukann. Maður finnur alls staðar fyrir því hvað fólk hefur tekið þetta inn á sig. Það sem mér kannski fannst agalegast að heyra var með flotgallana.“
Um borð í Jökli voru fjórtán flotgallar og þrír æfingagallar.
„Það hefðu átt að vera sautján og þrír æfinga.“
Nú hefur verið minna um mannskæð slys síðustu ár. Heldur þú að þetta sé áminning fyrir samfélagið?
„Ég held að það séu í raun allir af vilja gerðir að hafa allan búnað í lagi. Menn eru mjög opnir fyrir að skoða allt sem þeir sjá og benda á ef þeir sjá að er ekki alveg eins og þeir vilja hafa það. Þetta er orðið mikið meira öryggi í dag heldur en kannski var fyrir mörgum árum síðan. En maður getur alltaf klikkað. Við erum bara mannleg,“ segir Jónína.
„Ég votta öllum aðstandendum samúð sem eiga um harm sinn að liggja yfir og ég vona að góður Guð megi styrkja þau á þessum erfiðu tímum.“