Von er á að TF-GNÁ skili sér úr viðgerð í lok næstu viku en beint í kjölfarið gengst TF-GRÓ undir viðhald. Viðhaldið mun taka stuttan tíma og mun Landhelgisgæslan því vera með tvær nothæfar þyrlur innan tveggja til þriggja vikna.
Við tökum einnig stöðuna á netglæpum og tölvuárásum í ljósi umfangsmikillar árásar á tölvukerfi Reykjavíkurborgar. Fjöldi netbrota sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haft afskipti af hefur fjórfaldast og fjöldi tilkynninga fimmtánfaldast á einungis tveimur árum. Lögreglufulltrúi segir manneskjur í samfélaginu sem aðstoði glæpamenn við netsvik vera hundruð talsins.
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út í gær vegna manns með hníf. Betur fór en á horfðist.
Og í sportinu tökum við stöðuna á íslenska kvennalandsliðinu í handbolta og förum yfir það helsta í enska boltanum.