Jarðskjálfti að stærðinni 3,4 varð í Reykjadal klukkan 10:51.
Að sögn Veðurstofu hefur mjög lítil eftirskjálftavirkni fylgt eftir og hafa engar tilkynningar borist um að skjálftinn hafi fundist í byggð.
Nokkur ár eru síðan skjálfti af þessari stærð reið yfir í Reykjadal en það gerðist 2021. Sá skjálfti var af stærðinni 3,3. Skjálftar af þessari stærð eru því óalgengir en ekki taldir óeðlilegir á þessu svæði.