Rannsóknarstjóri hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa segir alla þætti skipsskaðans þegar Jökull ÞH sökk á miðvikudag til skoðunar, þar á meðal björgunarbúnaður. Líklega verði myndavéladróni sendur niður að flakinu en ólíklegt sé að hægt verði að ná því upp af hafsbotni.
Siglingarsvið rannsóknarnefndar samgönguslysa hóf rannsókn strax eftir að neyðarkall barst frá Jökli ÞH á miðvikudag og aðgerðarstjórn Landhelgisgæslunnar var virkjuð. Fram hefur komið að skipstjóri Jökuls hafi í neyðarkallinu sagt að lúga hefði brotnað að aftan og leki komið að skipinu. Nítján mínútum síðar var það sokkið.
Jón Pétursson, rannsóknarstjóri á siglingasviði, segir of snemmt að segja nokkuð um ástæður þess að skipið sökk. „Við viljum forðast að vera með getgátur. Við reynum bara að gefa frá okkur staðreyndir ef við vitum þær þegar að því kemur,“ segir Jón. Ýmsar kenningar séu á kreiki um hvað gæti hafa valdið slysinu. „Svona getgátur og að fólk – sem er nú gjarnan vel meinandi – sé með kenningar, þá er það bara algjörlega ótímabært.“
Oftast séu það margir samverkandi þættir sem hafa áhrif á útkomuna. „Yfirleitt er það þannig að það er ekki einhver ein ástæða fyrir svona löguðu.“
Ekki að leita að sökudólgi
Hann segir ekkert gefa tilefni til þess á þessari stundu að gruna að eitthvað óeðlilegt eða saknæmt hafi átt sér stað. Ekki sé verið að leita að sökudólgi. „Nei. Við rannsókn slysa erum við aldrei að skoða einhver saknæm atvik,“ segir Jón. „Við erum að vinna öryggisrannsóknir til þess að koma í veg fyrir að sams konar slys endurtaki sig og með því læra af atvikunum og auka öryggi.“
Bent hefur verið á líkindi með skipskaða sem varð í Barentshafi fyrir rúmum tuttugu árum þegar systurskip Jökuls, rússneska fiskiskipið Malakhit, fórst við svipaðar aðstæður.
„Við skoðum alla anga og skoðum sambærileg skip, slys á sambærilegum skipum,“ segir Jón. Rannsóknarnefndin hafi aðgang að gagnagrunni með upplýsingum um aðra skipsskaða.
„Við höfum aðgang að öllum upplýsingum þannig að við skoðum allt svoleiðis, en við fyrst og fremst vinnum okkar rannsókn og svo berum við það saman við hvort eitthvað hafi gerst áður en það er algjörlega ótímabært að vera með einhverjar slíkar getgátur.“
14 flotgallar en 17 skipverjar
Skipverjar sem komust lífs af hafa í viðtölum sagt að einungis fjórtán flotgallar hafi verið tiltækir en sautján voru í áhöfninni. Þrír hafi því klæðst æfingagöllum, en á þeim er til að mynda ekkert ljós. Jón segir þetta einnig til skoðunar. „Við skoðum allt sem kemur fram við rannsóknina. Það er farið yfir allt svona, björgunarþáttinn og allt saman. Þannig að það er allt saman skoðað og rannsakað,“ segir Jón. „Það er bara frumrannsókn í gangi sem felst í gagnaöflun og viðtölum við skipverja.“
Nánast útilokað að ná flakinu upp
Vont veður hefur verið austan við land, og þurfti varðskipið Freyja að hverfa frá því verkefni að fara á slysstað og ná í brak og önnur gögn frá skipinu. „Það er nú tiltölulega lítil von um að eitthvað slíkt finnist,“ segir Jón. Ólíklegt sé að hægt verði að ná flakinu af hafsbotni. „Ég hugsa að það sé nánast útilokað að ná flakinu upp en það er ekki útilokað að það sé hægt að senda niður dróna til að mynda það.“