Lögreglan og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka atburði miðvikudagsins 25. nóvember, þegar Jökull ÞH sökk austur af landi. Gagnasöfnun er hafin og í framhaldinu verða tekin viðtöl við áhöfnina.
Rannsókn lögreglu á skipsskaðanum þegar Jökull ÞH fórst er í höndum lögreglunnar á Austurlandi. Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn á Eskifirði, segir þetta venju samkvæmt þegar slys verða á sjó. „Það heyrir til lögreglu að rannsaka slys og aðrar ófarir og það er þess vegna sem lögreglan er komin að þessu og er að reyna að átta sig á því með öðrum – og þá rannsóknarnefnd samgönguslysa – hvað gerðist nákvæmlega og hvers vegna.“
Eiga eftir að ræða við áhöfnina
Gagnaöflun standi yfir og síðan verði farið í það að ræða við skipverja. „Hvað lögregluna varðar má segja að rannsókn málsins hafi hafist bara í beinu framhaldi af atburðum og miðar að því að safna gögnum og síðan afla gagna og við eigum svo eftir að heyra síðan í skipverjum og fá þeirra frásögn líka,“ segir Kristján.
Óvíst er hvort hægt verði að nálgast skipsflakið þar sem það liggur á hafsbotni. „Það er eitt af því sem lögreglan mun skoða eftir atvikum með Landhelgisgæslunni, að fá aðstoð þeirra ef mögulegt er og nauðsynlegt er að fara niður að skipinu, en það er ekki vitað nákvæmlega hvar það liggur eða á hversu miklu dýpi.“
Fylgdust með aðgerðarstjórn í Skógarhlíð
Rannsóknarnefnd samgönguslysa hóf rannsókn strax á miðvikudag. Rannsakendur fylgdust með aðgerðum í Skógarhlíð, enda nær rannsóknin einnig yfir aðgerðir viðbragðsaðila við leit og björgun. Þetta segir Þorkell Ágústsson, forstöðumaður rannsóknarnefndarinnar. Þegar hafi verið hafist handa við að safna gögnum og taka viðtöl við vitni.
Tilgangur með rannsóknum sjóslysa er að auka og efla öryggi til sjós og ekki er heimilt að nota gögn eða skýrslur nefndarinnar sem sönnunargagn í dómsmálum.
Vont veður á slysstað
Freyja, varðskip Landhelgisgæslunnar, var á leið á slysstað í hreinsunarstörf og til að safna gögnum en þurfti frá að hverfa vegna veðurs. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Gæslunnar, segir að talið hafi verið ljóst að sökum vinds og sjólags væri slíkt hreinsunarstarf ómögulegt.