Einn lést í umferðarslysi á Suðurstrandarvegi í gær, ökumaður fólksbifreiðar.Kemur það fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.DV greindi frá því í gær að Krýsuvíkurvegi var lokað um klukkan 17 milli Suðurstrandarvegar og Leiðarendavegar, vegna umferðarslyss á Suðurstrandarvegi. Vörubíll og fólksbíll lentu í árekstri, mikill viðbúnaður var á vettvangi og slysið mjög alvarlegt, en við áreksturinn kviknaði í fólksbifreiðinni.
Ökumaður fólksbifreiðar lést á Suðurstrandarvegi