Nefnd um eftirlit með lögreglu minnir lögregluna á Suðurnesjum á að mikilvægt sé að hún eigi að hafa samband við foreldra eða forráðamenn einstaklinga undir lögaldri sem höfð séu afskipti af. Tilefnið er mál sem kom upp á Ljósanótt í Reykjanesbæ í september síðastliðnum. Lögreglan handtók þá 15 ára pilt en hann var í gulri hettupeysu eins og einstaklingur sem lögreglumenn voru að leita að. Lögreglumenn beittu valdi við handtökuna með þeim afleiðingum að pilturinn meiddist. Hins vegar var aldrei haft samband við foreldra hans að fyrra bragði til að upplýsa þá um handtökuna.
Lögreglumenn sáu ungling í gulri hettupeysu - Það sem gerðist næst dró dilk á eftir sér