Paul Watson sem barist hefur gegn hvalveiðum Íslendinga áratugum sáman og eldað grátt silfur við t.d. Kristján Loftsson og Landhelgisgæsluna fékk ekki góð viðbrögð, frá sumum Íslendingum, þegar hann sendi samúðarkveðjur til fjölskyldna þriggja áhafnarmeðlima Jökuls, sem létust þegar skipið sökk á miðvikudagskvöld. Láta sumir vægast sagt þung orð falla í garð Watson. Segist Watson forviða á viðtökunum og leggur áherslu á að þótt menn deili á sjónum þá séu þar mannslíf alltaf í fyrirrúmi.
Fékk að heyra það eftir að hafa sent samúðarkveðjur vegna hinna látnu á Jökli