Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarna ríkislögreglustjóra, segir netárásir á mikilvæga innviði eina helstu ógnina sem steðjar að íslensku samfélagi. Rætt var við hann og Helga Hrafn Gunnarsson, forritara og fyrrum þingmann, í Vikulokunum.
Umfangsmiklar árásir hafa verið gerðar á fyrirtæki og stofnanir síðustu daga og vikur, þar á meðal Reykjavíkurborg, Bláa lónið og nethýsingarfyrirtækið 1984.
„Já, þetta er ein af meginástæðunum fyrir því að við fórum fram með þennan bækling,“ segir Runólfur sem vísar til bæklingsins Verum viðbúin sem gefinn var út af almannavörnum.
„Þegar hættumynd fyrir Ísland er dregin upp þá er það að sjálfsögðu náttúruváin sem við þekkjum en það eru líka netárásir og mögulega skemmdarverk,“ segir Runólfur.
Enn er óvissustig í gildi vegna netárása sem netöryggissveitin CERT-IS og almannavarnir virkjuðu þann 25. nóvember. Runólfur segir að þróun undanfarinna vikna hafi gefið skýrt tilefni til þess.
„Það er verið að nota gervigreindartól til þess að leita að veikleikum í upplýsingakerfum og þar eru okkar ómissandi innviðir undir líka,“ segir hann.
Hægt er að horfa á viðtalið við Helga Hrafn og Runólf í spilaranum hér fyrir neðan. Það hefst á 45. mínútu.
Mikil breyting á netárásum með tilkomu gervigreindarinnar
Helgi Hrafn segir að tölvuárásir séu ekki nýjar af nálinni og hafi verið stundaðar alla þessa öld. Hann skiptir baráttunni upp í hið vonda og góða eftir því hvort menn séu að reyna að vernda upplýsingar og gögn eða hvort þeir séu að reyna að stela þeim.
„Ef þú ert kerfisstjóri og þú ert með netþjón einhvers staðar og þú kíkir í atvikaskrána, hvað hefur verið að gerast, þá sérðu fullt af tilraunum til þess að brjótast inn, það er linnulaust, viðvarandi, allan daginn,“ segir Helgi.
Árásirnar núna séu þó stærri og þróaðri vegna tilkomu gervigreindar.
„Það þýðir að þetta kapphlaup sem góða liðið og vonda liðið eru alltaf í er orðið miklu harðara,“ segir Helgi. Hann segir að fólk sem er í góða liðinu og hugar að öryggi vinni yfirleitt, en af og til vinni vonda liðið.
„Það sem er að gerast núna vegna gervigreindar er að þegar vonda liðið vinnur þá er svo mikið í húfi, skaðinn er svo mikill í það skipti sem vonda liðið vinnur,“ segir Helgi.
Hann telur þó að um tímabundið ástand sé að ræða.
„Mikið af veikleikum eru að uppgötvast núna vegna tilkomu gervigreindar og góða liðið sem við nefndum hér áðan mun að öllum líkindum fylla upp í götin,“ segir hann. Tímabil sé þó hafið þar sem nauðsynlegt er fyrir alla að sýna sérstaka aðgát á netinu.