Boeing 757-þotan hefur þegar skapað sér sess sem einhver merkasta flugvél íslenskrar flugsögu. Engin önnur farþegaflugvél hefur þjónað Íslendingum jafn lengi og hún eða í nærri 37 ár.
„Þessar einstöku vélar hafa um áratugaskeið flutt farþega okkar beggja vegna Atlantshafsins og nú er komið að því að heiðra þær með þeim hætti sem þær eiga skilið,“ segir í tilkynningu Icelandair.
Flugvélinni hefur verið lýst sem vel heppnaðri og fallegri, eins og hér má heyra:
„Klukkan 7:57 að morgni miðvikudagsins 6. janúar 2027 fljúgum við frá Keflavík til Kaupmannahafnar og aftur heim í síðasta áætlaða farþegafluginu okkar á Boeing 757 flugvél. Við opnum fyrir bókanir í þetta sögulega flug á mánudagsmorgun, 30. nóvember 2026, klukkan 13:00,“ segir Icelandair.
Í þætti Flugþjóðarinnar á Stöð 2 um 757-þotuna var fullyrt að þegar kæmi að efnahagslegri þýðingu flugvéla væri engin sem toppaði hana í þjóðarbúskap Íslendinga. Engin þota hafi flutt eins marga ferðamenn til Íslands né jafn marga Íslendinga til útlanda. Engin flugvél hafi átt eins stóran þátt í að byggja upp flugrekstur Icelandair sem og íslenska ferðaþjónustu.
Hér má sjá tíu mínútna kafla úr þættinum:
„Boeing 757 er í miklu uppáhaldi hjá áhöfnum og flugáhugafólki. Vélarnar hafa skipað sér sess vegna einstakrar samsetningar af afli, flugdrægni og fjölhæfni.
Með tilkomu þeirra varð auðveldara að tengja saman borgir og heimsálfur og urðu þær fljótt ómissandi hluti af flotanum okkar,“ segir Icelandair.
Það var haustið 1988 sem stjórn Flugleiða samþykkti að kaupa tvær Boeing 757 og að semja um kauprétt að þeirri þriðju. Fyrstu 757-þotuna fékk félagið afhenta í apríl 1990 og þá næstu mánuði síðar. Hversvegna ráðamenn félagsins völdu þessa flugvélartegund má fræðast um í þessu tíu mínútna myndskeiði:
Fyrsta Boeing 757-200 vélin, TF-FIH, nefnd Hafdís, kom til landsins 10. apríl 1990. Vélinni var síðar breytt í fraktvél og var hún í rekstri hjá Icelandair Cargo til 2023. Fjallað var um TF-FIH í þessar frétt Stöðvar 2:
Fyrsta áætlunarflug Icelandair með 757 vél var 12. apríl 1990 og fór hún þá í svokallað þríhyrningsflug frá Keflavík til Oslóar, þaðan til Stokkhólms og svo aftur til Keflavíkur. Síðan þá hafa alls 42 Boeing 757 flugvélar verið í rekstri hjá Icelandair, fjörutíu Boeing 757-200 og tvær 757-300, samkvæmt yfirliti Icelandair.
Flestar þeirra voru nýttar í farþegaflug, en nokkrar voru eingöngu reknar af dótturfélaginu Loftleiðum. Þegar mest lét sumarið 2016 voru alls 28 Boeing 757 vélar nýttar í leiðakerfi Icelandair.
Þrjár Boeing 757 eru enn í flota Icelandair en þær verða allar teknar úr áætlun á sama tíma, að loknu síðasta farþegafluginu í janúar 2027. Allar þrjár síðustu vélarnar voru afhentar nýjar til Icelandair á árunum 1998 til 2000 og hafa verið í notkun öll árin síðan. Þær eru: TF-FIN, nefnd Eldborg, TF-FIO, nefnd Krafla, og TF-FIP, nefnd Snæfell.