Fjórtán öðrum skipverjum var bjargað í umfangsmiklum björgunaraðgerðum. Kristinn Hrannar Hjaltason, skipstjóri á Jökli ÞH 299, minntist skipsbræðra sinna í gær.
„Í dag flagga ég í hálfa stöng og mun hafa hann þar í þrjá daga og þrjár nætur fyrir þá þrjá sem við misstum. Ég vil votta virðingu mína og samúð til fjölskyldu skipsbræðra minna JASEK, ADDA og EGGERTS sem fórust í þessu hræðilega sjóslysi.“
Sárt saknað
Móðir Eggerts, Elín Halla Þórhallsdóttir minntist sonar síns í færslu á Facebook á fimmtudag.
„Það er með djúpri sorg og þungum hjörtum sem við tilkynntum að okkar ástkæri Eggert lést í sjóslysinu í gær þegar Jökull ÞH 299 fórst.“
„Hugur okkar er jafnframt hjá fjölskyldum og ástvinum þeirra sem einnig misstu ástvini sína í þessu hörmulega slysi, sem og öðrum skipverjum og aðstandendum þeirra,“ bætti Elín við.
Dóttir Aðalsteins, Agnes Aðalsteinsdóttir, minnist sömuleiðis föður síns.
„Pabbi minn var hörkutól. Villimaður með stórt hjarta og maður sem lét ekki mikið stoppa sig. Hann var ein stærsta lífsgjöf sem ég og börnin mín höfum fengið. Maðurinn sem elskaði mig, studdi mig og stóð við bakið á mér í einu og öllu. Ekki bara þegar lífið var auðvelt heldur líka þegar það reyndi hvað mest á mig.“
Jacek Belina var frá Ustka við Eystrasaltsströnd Póllands og fæddur árið 1974.