Samkvæmt heimildum Reuters er nú unnið að því að styrkja varnir kerfisins og bæta þann skaða sem árásin hefur valdið. Heimildarmenn fréttaveitunnar gátu ekki sagt til um hverjir hefðu framkvæmt árásina.
Í yfirlýsingu til Reuters vildu talsmenn flughersins ekki staðfesta að árásin hefði átt sér stað. Sögðu þeir eingöngu að mikið púður væri lagt í að verja gögn og kerfi flughersins.
Árásin mun sérstaklega hafa beinst að kerfi sem kallast „Cloud One“ en það er ein af stærstu skýjaþjónustum herafla Bandaríkjanna. Einn heimildarmanna Reuters sagði árásina vera stórmál.
Vegna árásarinnar lágu hlutar kerfisins niðri og heyrðu blaðamenn Reuters af því að einhverjir stjórnendur kerfisins hefðu misst réttindi sín.
Cloud One hefur í gegnum árin verið vinsælt skotmark tölvuþrjóta. Það var fyrst tekið í notkun árið 2017 og var ætlað að sameina ýmsar þjónustur flughersins. Að kerfinu koma Microsoft, Amazon, Oracle og Alphabet.
Meðal annars má finna upplýsingar úr ratsjám og loftvarnarkerfum Bandaríkjamanna og má einnig finna upplýsingar um það hvar í heiminum forsvarsmenn flughersins hafa komið flugskeytum, sprengjum, hermönnum og fleiru fyrir.
Undanfarna mánuði hafa áhyggjur kerfisstjóra víða um heim aukist með hratt bættri getu gervigreindar til að greina kóða og finna veikleika í þeim. Nýverið gerðu hakkarar árásir á kerfi Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI), varnarmálaráðuneytið, heimavarnaráðuneytið og að minnsta kosti á tvær af leyniþjónustum Bandaríkjanna, svo eitthvað sé nefnt.