Fram hefur komið í máli þeirra skipverja Jökuls ÞH sem lifðu slysið af á miðvikudag að áhöfnin hafi ekki getað nýtt sér björgunarbáta skipsins. Annar þeirra hafi setið fastur en hinn hafi rekið burt án þess að áhöfnin hafi náð til hans.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra var spurður út í þessa staðreynd að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun og hvort ekki þyrfti að rýna vel í öryggismál sjómanna í kjölfar slyssins.
„Ég tel eðlilegt að við drögum lærdóm af þessu slysi, alveg tvímælalaust, og förum yfir okkar verkferla og annað slíkt. Það gerðist að björgunarbátur losnaði ekki frá skipinu og hinn fór langt frá svo að sjómennirnir gátu ekki nýtt þá heldur þurftu að fara í þurrbúninga sína. Það er mjög eðlilegt að við rýnum í það,“ sagði Eyjólfur fyrr í dag.
„Þetta mál fer til rannsóknarnefndar samgönguslysa og ég ber fullt traust til þeirrar stofnunar, það er mjög öflug stofnun.“
Gríðarlegur árangur hafi náðst
Hann telur að sjómenn geti treyst því að eftirlit með þeirra öryggisbúnaði sé í lagi.
„Við getum alltaf gert betur og ef draga þarf lærdóm af þessu slysi þá munum við sannarlega gera breytingar. En varðandi öryggi fiskimanna þá stöndum við mjög framarlega. Á undanförnum árum og áratugum höfum við náð gríðarlegum árangri og höfum verið framarlega á heimsvísu. Það breytir því ekki að það varð hörmulegt slys sem við þurfum að rýna vel og draga lærdóm af.“
Að sögn Eyjólfs er frumrannsókn rannsóknarnefndar samgönguslysa hafin og viðtöl fram undan. Í kjölfarið þurfi síðan að vinna skýrslu og kynna niðurstöður hennar. Hvað varði öryggi sjómanna þá tali árangurinn sínu máli.
„Það varð ekkert banaslys á árunum 2017 til 2021, á fimm ára tímabili. Ef við skoðum þetta áratug aftur í tímann þá er árangurinn mjög góður. Við höfum líka talað fyrir því á vettvangi Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar að lögfesta Höfðaborgarsáttmálann sem lýtur að öryggi fiskimanna. Við náðum gríðarlegum árangri fyrr á árinu, bæði hvað varðar tonnafjölda og fjölda þjóða og 27. febrúar mun taka gildi alþjóðlegur sáttmáli um öryggi fiskimanna. Það er árangur sem Ísland hefur náð líka með því að hvetja önnur ríki.“
„Það breytir því ekki að við þurfum að draga lærdóm af þessu slysi og sjá hvað við getum gert betur. Það er algjört grundvallarmál fyrir okkur sem fiskveiðiþjóð.“