Ríkisstjórnin ákvað að flýta því að bæta fjórðu þyrlunni við flota Landhelgisgæslunnar á fundi sínum í morgun. Hún á að vera á Akureyri. Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Björgunarþyrlur Landhelgisgæslunnar eru núna í Reykjavík. Aðeins ein þeirra var tiltæk þegar skipið Jökull ÞH sökk á miðvikudag.
„Það sem verður lagt til við fjárlaganefnd núna er að fundið verði fjármagn til þess að hefja undirbúning með því að reisa skýli. Það vantar aðstöðu fyrir nýja þyrlu. Við erum að flýta ferlinu, leggja af stað með kostnað fyrir skýli. Það hefur verið tekin ákvörðun um að fjórða þyrlan verði staðsett á Akureyri.“
Áætlaður kostnaður við fjórðu þyrluna er rúmlega milljarður króna á ári. Dómsmálaráðherra segir það blasa við að verkefnið sé dýrt, enda hafi það setið á hakanum lengi. „Við vitum hver kostnaðurinn er og munum bera hann.“
Mikil eftirspurn er eftir þyrlum. Talið er að það gæti tekið 1–3 ár að taka þyrlu á leigu. Dómsmálaráðherra segir að því verði flýtt eftir fremsta megni að fá hana til landsins.