Frá áramótum fá lögreglumenn greidda sex sálfræðitíma á ári í stað tíu frá embætti Ríkislögreglustjóra. Formaður Landssambands lögreglumanna gagnrýnir að gripið sé til niðurskurðar á þjónustu vegna mikillar ásóknar.
Fjárveitingar nægja ekki fyrir notkunina
Lögreglumenn fengu áframsendan tölvupóst frá Höllu Bergþóru Björnsdóttur ríkislögreglustjóra í byrjun vikunnar. Í honum kemur fram að tillaga um breytt fyrirkomulag á sálfræðiþjónustunni hafi verið kynnt á fundi lögregluráðs 24. september.
„Frá 1. janúar 2027 greiðir embættið fyrir allt að sex viðtöl á ári í stað tíu. Starfsfólk getur nýtt viðtölin eftir þörfum yfir árið. Talan byggir á forathugun á reikningum frá stærstu meðferðaraðilum, sem sýndi að aukning kostnaðar skýrist af fjölgun skipta á hvern einstakling, ekki af því að fleiri nýti þjónustuna eða af hærra einingaverði. Fjárveitingar til verkefnisins nægja ekki fyrir núverandi notkun og því þarf að stilla notkunina af meðan betri mynd fæst af kostnaðinum,“ segir í tölvupóstinum .
Ákvörðunin verður endurskoðuð haustið 2027, þegar gögn úr nýja fyrirkomulaginu liggja fyrir.
Í póstinum kemur fram að sértilvik og starfstengd skyndileg áföll fái áfram skýran farveg þrátt fyrir að hámarki sé náð.
Jafnframt verði tekin upp einkvæm númer sem starfsfólk fái úthlutað og framvísi hjá meðferðaraðila. Þannig fáist yfirsýn yfir hvernig þjónustan sé nýtt.
„Eina nýja skrefið er að fá einkvæmt númer hjá embættinu áður en meðferð hefst og láta meðferðaraðila fá það. Nafn starfsmanns kemur hvergi fram í greiðsluferlinu eftir þetta. Þeir sem þurfa fleiri en 6 skipti geta sótt um undanþágu hjá embættinu eða leitað til síns stéttarfélags.“
Í tölvupóstsins eru lögreglumenn hvattir til að leita stuðnings þegar þeir þurfi á honum að halda. „Enginn á að þurfa að standa einn í erfiðri líðan.“
Kemur á erfiðum tíma
Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, segir ákvörðunina vonbrigði.
„Þetta kemur á dálítið erfiðum tíma, bæði vorum við nú í blaðinu okkar að tala um andlega líðan lögrelgumanna og svo auðvitað er mikil umræða núna um ofbeldi gegn lögrelgumönnum og þeirra líðan. Ég hef vissan skilning á þessu.“
Ríkislögreglustjóri hafði frumkvæði að því að bjóða upp á þessa þjónustu. Í október hafi embættið tilkynnt sambandinu um ákvörðunina og að hún kæmi til vegna niðurskurðar.
„Sem er auðvitað kannski dálítið broslegt, að bjóða upp á þjónustu og hún er svo mikið notuð að það er ekki hægt að borga hana. En ég veit að ríkislögreglustjóri kynnti þetta líka fyrir lögregluráði, sem eru allir lögreglustjórar landsins, og það virðist vera að þeir hafi bara samþykkt þetta og ekkert boðist til þess að koma eitthvað til móts við ríkislögreglustjóra og taka þátt í kostnaðinum.“
Fjölnir segir að verið sé að ná utan um notkun á þjónustunni með þessum aðgerðum og að það sé gefið í skyn í tölvupóstinum að það séu fleiri starfsmenn en lögreglumenn að nota þjónustuna.
Skref til baka
„Auðvitað er þetta svona út á við, „PR-lega“ séð ekki besti staðurinn til að skera niður í sálfræðiþjónustu við lögreglumenn, þykir virkilega vænt um þeirra geðheilsu. En þau telja sig þurfa að gera þetta og vonandi bara kemur í ljós að þau geti aftur aukið tímana.“
Þrátt fyrir að ákvörðunin sé tímabundin óttast Fjölnir að hún verði ekki aukin á ný.
„Auðvitað óttast maður að þegar það er búið að minnka kostnaðinn sé það þægilegt og þau vilji ekki auka hann aftur.“
Hann telur fáa lögreglumenn nýta sér alla tíu tímana sem þeir eiga rétt á árlega. Auk þess sem það geti tekið nokkur skipti að finna réttan sálfræðing.
„Það getur líka verið skýringin á því af hverju fólk kannski er að taka dálítið marga tíma þangað til að það finnur réttan sálfræðing. Einn tími hjá sálfræðingi gerir í rauninni ekki neitt.“
Fjölnir segist hafa fengið mikil viðbrögð við ákvörðuninni.
„Lögreglumenn eru greinilega að nýta þetta og greinilega í auknum mæli. Við erum náttúrlega búin að vinna í þessari hugarfarsbreytingu innan lögreglunnar að fólk fari til sálfræðings og segi frá því. Hin Norðurlöndin hafa dáðst að okkur fyrir þetta, hvað við höfum verið dugleg að koma okkar félögum til sálfræðings. Þannig að þetta er skref til baka, því miður.“