Ólína starfaði sem prófessor og deildarforseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst frá 2022. Hún tók við sem staðgengill rektors með skömmum fyrirvara eftir að Margrét Jónsdóttir Njarðvík sagði af sér.
Hún hefur síðan gegnt embættinu og hefur núna formlega verið ráðin sem rektor skólans til frambúðar. Ólína er doktor í íslenskum bókmenntum og þjóðfræðum og hefur birt fjölda fræðigreina og bókarkafla.
Ólína hóf starfsferilinn sinn á fjölmiðlum og varð síðar meir virk í íslenskum stjórnmálum. Hún var borgarfulltrúi og borgarráðsmaður í Reykjavík og alþingismaður fyrir Samfylkinginguna árin 2009 til 2016. Samhliða störfum sínum við skólann hefur Ólína verið virkur rithöfundur og gefið út níu bækur.