Trump varpaði þessum ásökunum fram á samfélagsmiðli sínum í gær eftir að ráðuneytið breytti á miðvikudaginn tölfræði um hagvöxt á þriðja ársfjórðungi. Fyrst hafði ráðuneytið sagt að hagvöxturinn hefði verið 3,4 prósent á milli ára en því var svo breytt í 4,3 prósent.
AP-fréttaveitan segir að slík endurskoðun sé hefðbundin og að hún fylgi fyrir fram ákveðinni dagskrá sem sé ákveðin án tillits til kosninga eða annarra vendinga í stjórnmálunum vestanhafs.
Sjá einnig: Segir rannsóknir á Trump mögulega glæpsamlegar
Í færslu sinni á Truth Social heldur Trump því þó fram að tölfræðin hafi vísvitandi verið gerð röng til að koma höggi á Repúblikana fyrir kosningarnar. Repúblikanar hlutu afhroð í kosningunum og tryggðu Demókratar sér rúman meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings.
„Af hverju var rétta talan ekki birt fyrir kosningarnar? Ég bið um rannsókn á þessu hið snarasta.“
Umrædd færsla er mjög löng en hún á í grunninn að vera hamingjuóskir til Bandaríkjamanna vegna þakkargjörðarhátíðarinnar um helgina. Trump fer um víðan völl í færslunni, þar sem hann talar meðal annars með niðrandi hætti um innflytjendur frá Sómalíu, eins og hann hefur ítrekað gert áður.
Trump hélt því einnig fram að Demókratar ætluðu sér að koma á sjaríalögum og kommúnisma í Bandaríkjunum.
Að endingu kvartaði hann yfir því að fólk væri að setja út á framkvæmdir hans í höfuðborg Bandaríkjanna, Hvíta húsinu og byggingu veislusalsins við Hvíta húsið.