„Klukkutíma áður en þyrlan kom var ég búinn að halda utan um einn háseta sem er skjálfandi. Ég er endalaust að segja „þú ert nagli, þú getur þetta, hjálp er á leiðinni“,“ segir Ásgeir Elí Gerðarson, átján ára háseti sem var um borð í Jökli ÞH299 sem sökk á miðvikudag, í viðtali sem var birt í hádegisfréttum Bylgjunnar. Þrír létust í sjóslysinu en fjórtán björguðust.
Ásgeir Elí öskraði þegar hann var kominn hálfa leið upp í þyrluna: „Þetta verður með mér alla mína ævi“