Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að ekki sé hægt að útiloka að þjóðríki hafi staðið að baki einhverjum þeirra netárása sem gerðar hafa verið á íslensk fyrirtæki og stofnanir síðustu daga og vikur. Meðal þeirra sem orðið hafa fyrir árás eru Reykjavíkurborg, Bláa lónið og 1984.
„Við útilokum ekkert í því, bara þannig að það sé sagt, en við sjáum að það geta verið ákveðin tiltekin þjóðríki. Við vitum auðvitað af Rússum, þeir eru úti um allt núna þessa dagana í Evrópu að reyna að draga úr samstöðumætti Evrópuríkja með Úkraínu,“ segir Þorgerður Katrín.
„Við vitum líka að það geta verið ríkjahópar sem standa fyrir svona en það geta líka verið hópar sem falla undir skipulagða brotastarfsemi,“ segir hún. Verið sé að skoða ýmsar sviðsmyndir. Ekki er búið að greina hverjir gerendur eru.
Í stöðumati sem CERT-IS birti í gær metur sveitin stöðuna óbreytta og að því sé áfram óvissustig í gildi.
„Enn ríkir óvissa um hversu alvarleg ógnin af gervigreindarstýrðum netárásum er en CERT-IS hafa borist talsvert af tilkynningum um þreifingar frá staðfestum spillivísum þar sem varnir héldu,“ segir í tilkynningu CERT-IS.
Þorgerður Katrín segir að Ísland standi frammi fyrir ógninni af gervigreindarárásum líkt og önnur þjóðríki. „Og þetta eru ekki litlar ógnir,“ segir Þorgerður sem tekur fram að ríkisstjórnin hafi eflt viðbragð og getu CERTIS, netöryggissveitar
„Þetta getur haft veruleg áhrif á innviði landsins og þess vegna bið ég einmitt bæði fólk og fyrirtæki að taka þessum hlutum alvarlega, byggja upp sínar varnir,“ segir Þorgerður Katrín.
Unnið að því að vernda íslenska fjármálakerfið
Aðspurð hvort íslenskt fjármálakerfi sé öruggt gagnvart árásum sem njóta aðstoðar gervigreindar segist hún ekki vilja tjá sig beint um það.
„Að öðru leyti en því að ég veit að íslenskt fjármálakerfi, allar þessar lykilstofnanir sem má flokka undir mikilvæga innviði, hafa allar verið að taka mjög skýr og ákveðin skref í að efla sínar varnir á þessu sviði. Hvort sem það er fjármálakerfið, veitukerfin okkar eða aðrar stofnanir,“ segir Þorgerður Katrín.
„Það hefur orðið ákveðin vitundarvakning í þessu sem er gott.“