Pólski maðurinn sem fórst þegar fiskiskipið Jökull ÞH 299 sökk á miðvikudag hét Jacek Belina, eins og RÚV greinir frá. Hann var frá Ustka í Póllandi og fæddur árið 1974. Jacek er einn þeirra þriggja skipverja sem fórust í slysinu. Fjórtán var bjargað á lífi, eins og Nútíminn greindi frá.
Hinir tveir sem fórust voru Eggert Ellertsson, 41 árs, og Aðalsteinn Steinþórsson, 59 ára, eins og Nútíminn greindi frá. Allir þrír sem fórust á Jökli hafa nú verið nafngreindir.
Jökull, sem er gerður út frá Raufarhöfn, sökk um sextíu sjómílur austur af landinu síðdegis á miðvikudag. Þrír skipverjar fórust og fjórtán var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar.