Sabine Leskopf segir ummæli forstjóra Landhelgisgæslunnar þjóðrembu og karlrembu – Lilja svarar fullum hálsi

Ummæli Sabine Leskopf fv. borgarfulltrúa Samfylkingarinnar á Facebook í kjölfar hörmulegs sjóslyss fyrir austan land hafa vakið hörð viðbrögð. Sabine gagnrýnir orð forstjóra Landhelgisgæslunnar á blaðamannafundi þar sem hann lýsti yfir aðdáun sinni á íslenskum sjómönnum og sagði þá vera úr öðru efni.
Sabine kýs að túlka ummælin út frá þjóðerni og kyni sjómannanna.
„Mér leið ekki vel með þetta þjóðrembu-/karlrembutal í forstjóra Landhelgisgæslunnar á blaðamannafundinum,“ skrifar hún.
Hún vísar jafnframt til þess að meðal skipverja hafi verið sjómenn af erlendum uppruna og spyr:
„Var hann þá ekki úr réttu efni?“
Þjálfun og reynsla óháð þjóðerni
Ummæli forstjóra Landhelgisgæslunnar ber að skoða í samhengi við þjálfun, reynslu og hæfni sjómanna sem starfa innan íslensks sjávarútvegs.
Hugtakið íslenskir sjómenn nær í því samhengi ekki eingöngu til þeirra sem fæddir eru á Íslandi. Fjöldi sjómanna af erlendum uppruna starfar á íslenskum skipum og hlýtur þjálfun og starfsreynslu innan íslensks sjávarútvegs.
Lilja segir ummælin vanvirðingu við áhöfn og aðstandendur
Lilja Hjartar Benatov er meðal þeirra sem hafa brugðist við færslu Sabine.
Hún segir það ótrúlega vanvirðingu við bæði áhöfnina og aðstandendur að túlka orð forstjóra Landhelgisgæslunnar með þessum hætti á meðan þjóðin syrgir þá sem fórust.
„Hér á landi er sjómennskan ekki pólitískt bitbein. Úti á ballarhafi, í ískaldri brælu á dekki í stakk og vöðlum, gerir hafið engan greinarmun á því hvaðan menn koma eða hvaða móðurmál þeirra er.“
Lilja bendir á að þegar talað sé um hetjudáð íslenskra sjómanna eigi það við um alla áhöfnina, jafnt þá sem fæddust hér á landi og þá sem hingað komu annars staðar frá.
Hvetur til samstöðu á sorgarstundu
Lilja hvetur fólk til að sýna þeim sem fórust, þeim sem björguðust og björgunarfólkinu þá virðingu sem það á skilið.
„Hættum að reyna að búa til sundrungu og pólitískar hártoganir á sorgarstundu.“
Hún lýkur færslu sinni með því að senda ástvinum þeirra sem létust innilegar samúðarkveðjur.
Þrír sjómenn létust í slysinu og fjórtán var bjargað úr lífsháska.
Færslurnar má sjá hér neðar:

