Flugvirkjafélag Íslands hefur fellt kjarasamning við Icelandair í atkvæðagreiðslu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.
„Það eru mikil vonbrigði að samningar hafi ekki verið samþykktir af félagsmönnum FVFÍ. Við munum nýta næstu daga til þess að ákveða næstu skref,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair.
Flugvirkjafélagið og Icelandair undirrituðu kjarasamning 18. nóvember. Atkvæðagreiðslu félagsmanna um samninginn lauk í dag.
„Það var komið að þeim tímapunkti að það þyrfti að skrifa undir og svo setja þetta í hendur félagsmanna,“ sagði Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélagsins, þegar samningurinn var undirritaður.
Flugvirkjar fóru í verkfall 23. september. Því var aflýst eftir tæpan hálfan sólarhring þegar samkomulag um fjögurra vikna markvissar viðræður náðist.
Fréttin verður uppfærð.