Strákarnir úr Framhaldsskólanum á Laugum stigu fram sem kór í hléi Tónkvíslarinnar og sungu lagið Hafið eða fjöllin, en með heimagerðum texta um skólann sinn. Að sögn skólans tóku þeir salinn með trompi og viðstaddir voru agndofa yfir metnaðarfullu atriði þeirra.
Tónkvíslin, söngkeppni skólans, fór fram laugardaginn 21. nóvember í íþróttahúsinu á Laugum. Keppnin hefur verið haldin af nemendafélaginu frá árinu 2006 og er jafnframt forkeppni fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna. Á meðan dómarar réðu ráðum sínum komu strákarnir fram, og skólinn segir að skemmtiatriðið hafi vakið mikla lukku.
Skólinn birti myndband af atriðinu á Facebook 26. nóvember og skrifaði að viðbrögð Sigurbjörns Árna Arngrímssonar skólameistara segðu meira en þúsund orð.
Lagið um Flateyri varð lag um Laugar
Hafið eða fjöllin er sígilt lag Ólafs Ragnarssonar, sem oftast er kallaður Óli Popp. Hann samdi bæði lag og texta, ástaróð til Flateyrar. Fjallabræður hafa meðal annars flutt lagið, og það er einna þekktast í þeirra flutningi.
Strákarnir héldu laginu en sneru textanum upp á lífið á Laugum.
„Þetta kom bara mjög skemmtilega á óvart,“ segir Sigurbjörn í samtali við Nútímann. Hann hafði ekki séð atriðið fyrir fram. Kórinn hefur verið starfandi býsna lengi við skólann. Allir strákar mega vera með, en þeir eru án kórstjóra og æfa sig sjálfir. Þeir hafa oft verið með skemmtileg atriði, en að þessu sinni voru þeir greinilega búnir að æfa sig og búa til texta. „Þetta var mjög gaman.“
Laugamenn
Hann segir að það sé eitthvað sérstakt við skólann, eitthvað sem sést ekki í hverjum framhaldsskóla, og að þeir sem hafa verið á Laugum tali öðruvísi um skólann en flestir um sína skóla. Það sé alltaf gaman þegar krökkunum finnst gott að vera hjá þeim og þeim er annt um staðinn og starfsfólkið. „Staðurinn er einhvern veginn þannig að þú finnur á fyrstu vikunni hvort þú viljir þetta eða ekki.“ Eftir fyrstu vikuna segir hann stundum að enginn fari þaðan af fúsum og frjálsum vilja.
„Menn eru sko Laugamenn.“ Fólk sem var aðeins einn eða tvo vetur og fór svo annað lítur samt á sig sem Laugamenn. Jafnvel þeir sem voru aðeins tvo vetur líta ekkert síður á sig sem Laugamenn en þeir sem kláruðu. „Við náum miklum persónulegum tengslum við krakkana og reynum að vita hvað er í gangi í þeirra lífi og hugsa vel um þau.“