Þrír karlmenn fórust í slysinu. Að minnsta kosti einn er frá Húsavík þar sem útgerðarfélagið GPG Seafood er staðsett. Einn hinna látnu er frá Póllandi. Skipverjar eru héðan og þaðan af landinu. Sex komu til Reykjavíkur með flugi í nótt.
Talið er að áhöfnin á Jökli hafi verið í köldum sjónum í um fjórar klukkustundir áður en þyrla Landhelgisgæslunnar kom á svæðið frá Reykjavík eftir millilendingu á Hornafirði. Björgunaraðgerðir tóku um tvær klukkustundir þar sem sigmenn þyrlunnar sóttu hvern manninn af öðrum við afar erfiðar veðuraðstæður auk þess sem mennirnir voru flæktir í netum.
Sextán karlmenn voru um borð í Jökli og ein kona. Átján ára karlmaður var á meðal þeirra sem komust lífs af. Fréttastofa hefur ekki fengið staðfest hvort hann hafi verið yngsti meðlimur áhafnarinnar.