Neyðarkallið kom upp úr klukkan fimm síðdegis. Aðeins ein þyrla var tiltæk og var hún komin á staðinn klukkan 21:15.
Landhelgisgæslan á þrjár mjög öflugar björgunarþyrlur. Þær eru venjulega með fimm manna áhöfn en geta auk þess við bestu aðstæður einnig tekið nítján farþega.
Í gær var málum svo háttað að tvær af þessum þyrlum voru óflughæfar, ein var í c-skoðun og hin frá vegna bilunar, samkvæmt upplýsingum Gæslunnar, en fjallað var um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar.
En það er einnig umhugsunarvert að það líða yfir fjórar klukkustundir frá neyðarkallinu þar til þessi eina flughæfa þyrla er komin á staðinn. Auk þess hefði það sennilega geta haft mikla þýðingu að hafa tvær þyrlur í gærkvöldi.
Neyðarkall frá Jökli ÞH.
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, kemur á slysstað.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GRÓ, kemur á slysstað.
TF-GRÓ lendir á Egilsstöðum.
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, var spurður um þetta á blaðamannfundinum í morgun.
„Þá er rétt að hafa í huga að þyrlur eru viðsjárgripir og það er erfitt að treysta þeim. Það er mikið viðhald á þyrlum.
Svona til að upplýsa þá eru um níu viðhaldstímar á móti hverjum flognum tíma. Þannig að það verður aldrei tryggt, nema bara með fjölda þyrlna, að hafa tvær.
Það verður ekki mögulegt að koma þyrlum í það að stand að þær bili ekki eða fari ekki í skoðanir. Til þess að hafa tvær í lagi þá þurfum við að hafa fjórar. Það er bara svo einfalt,“ sagði Georg.
Þessi eina flughæfa þyrla, TF-GRÓ, var staðsett í Reykjavík þegar útkallið kom en gat ekki flogið beint yfir hálendið vegna veðurs. Hún flaug því með ströndinni og millilenti á Hornarfirði. Þar var búnaður eins og sætin tekin úr henni til að létta hana og tekið meira eldsneyti.
Vegalengdin sem þyrlan flaug úr Reykjavík um Hornafjörð á slysstaðinn í gærkvöldi reiknast í loftlínu vera yfir 600 kílómetrar. Ef þyrla hefði verið staðsett á Akureyrarflugvelli þá hefði bein loftlína verið um 290 kílómetrar, eða meira en helmingi styttri. Flug þaðan hefði auk þess væntanlega ekki kallað á millilendingu, með tilheyrandi töfum.
Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður ræddi þyrlumálin í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann hefur ótrekað lagt til að annarri starfsstöð Landhelgisgæslunnar verði komið upp á Akureyrarflugvelli og að hún verði hluti af framlagi Íslendinga til samstarfs innan NATO.
„Bestu skilyrðin eru á Akureyri, bara út frá innviðum og sjúkrahúsinu. Sjúkraflugið er til staðar þar, þetta hefðbundna.
Þannig að þar er mannskapur, þar eru flugvirkjar og annað, til koma upp starfsstöð Gæslunnar þar.
Ég byrjaði að tala um þetta vorið 2017 í sérstakri umræðu í þinginu. Og síðustu ár er ég búinn að vera með mál um þetta,“ sagði Njáll Trausti.
Tveggja hreyfla þyrla af tegundinni Airbus Helicopters H225.
- Árgerð: 2010
- Áhöfn: 2 flugmenn, 1 sigmaður, 1 spilmaður og 1 læknir, alls 5
- Farþegar: 19
- Hámarkshraði: 175 sjóm/klst (324 km/klst)
- Hámarks flugdrægi: 613 sjómílur (1135 km)
- Hámarks flugþol í leit á hagkvæmasta hraða 5 klst, en annars tæpar 4 klukkustundir.
- Afísingarbúnaður
- Tvöfalt björgunarspil
- Hitamyndavél
- Leitarljós
- Utanáliggjandi neyðarflotum sem blása upp við nauðlendingu í sjó