Ýmislegt fréttnæmt kom fram á haustfundi Landsnets miðvikudaginn 25. nóvember undir yfirskriftinni: Tengjum tækifærin. Fundurinn átti upphaflega að vera 1. október en var frestað þegar ung kona slasaðist alvarlega í vinnuslysi í tengivirki Landsnets 28. september.
Kannski má segja að það sem í fyrsta lagi stóð upp úr á fundinum sé að Landsnet hefur skilgreint átta vaxtarsvæði á landinu þar sem mikil eftirspurn er eftir raforku, möguleikar til orkuframleiðslu til staðar og hagkvæmt er að styrkja flutningskerfið til að anna þeirri eftirspurn. Landsnet ætlar að forgangsraða uppbyggingu á þessum svæðum.
Í öðru lagi kom fram að á næstu 10-15 árum tengir Landsnet væntanlega ekki fleiri en þrjú til fjögur vindorkuver við flutningskerfið. Ástæðan er sú að óstöðug raforkuframleiðsla frá vindmyllum, sem fer jú eftir því hvernig vindar blása, skapar alveg sérstakar áskoranir í flutningi raforku.
Einbeita sér að átta vaxtarsvæðum
Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets, sagði við Spegilinn að Landsnet stæði frammi fyrir sömu áskorunum og sambærileg fyrirtæki um alla Evrópu. Eftirspurn eftir raforku hefði aukist og hún væri fjölbreyttari. „Hér áður fyrr var stórnotandi og það var virkjun og svo var tengt á milli. Núna er fjölbreyttari eftirspurn frá gagnaverum og matvælaiðnaði.“ Landsnet fengi mun fleiri fyrirspurnir en áður. „Við höfum bara varla séð annað eins.“ Um leið þyrfti að tryggja afhendingaröryggi og áfallaþol kerfisins.
Hugsa þyrfti hlutina upp á nýtt og það hefði Landsnet gert með því að skilgreina átta vaxtarsvæði þar sem í senn væri aukin eftirspurn eftir raforku og tækifæri til aukinnar orkuöflunar. Þetta eru Vestmannaeyjar, Þorlákshöfn, Reykjanes, Akranes, Blönduós, Akureyri, Bakki og Austfirðir. Með því að einbeita sér að arðbærum framkvæmdum á þessum stöðum sköpuðust möguleikar á að byggja byggðalínur og meginlínur upp í áföngum án þess að skapa of mikinn þrýsting til hækkunar á gjaldskrá Landsnets.
Áður hefði megináherslan verið á að byggja upp nýja kynslóð byggðalína og efla meginflutningskerfið, s.s. með uppbyggingu Holtavörðuheiðarlína 1 og 2 og Blöndulínu. Slík uppbygging væri nauðsynleg en mjög dýr og ekki arðbær á sama hátt og uppbygging við vaxtarsvæði sem væri arðbær fyrir Landsnet vegna þess að á bak við hana væri aukin raforkuvinnsla og aukin raforkunotkun. Uppbygging byggðalína og meginflutningslína fæli aðallega í sér aukið áfallaþol, betri afhendingu og aukna nýtingu. Að óbreyttu, þ.e. án þess að forgangsraða vegna vaxtarsvæða, myndi slík fjárfesting leiða til hækkunar á gjaldskrá.
Nauðsynlegt að brjótast út úr pattstöðu
Ragna benti líka á að tekjur Landsnets af hverri fluttri orkueiningu væru ekki háar í samanburði við önnur Norðurlönd. „Okkar áskorun er að halda vel utan um budduna, finna hvernig við getum farið í arðbærar framkvæmdir en líka farið í þessar stóru og nauðsynlegu framkvæmdir en sem eru dýrar.“
Á haustfundinum sagði Ragna að pattstaða hefði verið komin upp sem nauðsynlegt hefði verið að brjótast út úr. Kröfur væru um mikla uppbyggingu flutningskerfisins en á hinn bóginn væri þess krafist að gjaldskrá yrði ekki hækkuð. Ný forgangsröðun þýddi að það þyrfti að áfangaskipta uppbyggingu byggðalína og meginflutningslína sem gæti seinkað framkvæmdum miðað við fyrri áform en á hinn bóginn mætti spyrja hversu raunhæfar þær áætlanir hefðu verið.
Ekki fleiri en 3-4 vindorkuver á næstu 10-15 árum
Ragna sagði líka að framkvæmdir við byggðalínur og meginflutningskerfi væru nauðsynlegar, meðal annars ef tengja ætti vindorkuver inn á kerfið.
Og hér er þá komið að seinni helsta fréttapunktinum af haustfundi Landsnets. Í erindi Magna Þ. Pálssonar, verkefnastjóra rannsókna hjá Landsneti, kom fram að á næstu 10-15 árum myndi Landsnet líklega ekki tengja fleiri en 3-4 vindorkuver við flutningsnetið.
Magni fjallaði á fundinum um áform um mikla uppbyggingu á vindorkuvera víða um land. Hann benti á að uppsett afl raforkukerfisins væri 2.900 MW með öllum virkjunum á landinu.
Yrðu öll vindorkuverkefnin sem eru á teikniborðum að veruleika myndi uppsett afl raforkukerfisins, eingöngu með viðbótinni frá vindorku, aukast um 4.900 MW, hún myndi sem sagt aukast um 170%.
Áform um tæplega 40 vindmylluverkefni
Magni ræddi um að miklar áskoranir fælust í að tengja vindorku inn á flutningskerfi raforku enda væri framleiðslan mjög sveiflukennd. Hann spáði því að eftir 10-15 ár yrði ef til vill hægt að bæta við 3-4 vindorkuverum en nú eru áform um tæplega 40 slík verkefni. Verin sem gætu tengst kerfinu gætu hvert og eitt verið á stærð við Vaðölduver, sem Landsvirkjun er að reisa. Uppsett afl Vaðölduvers verður 120 MW þegar allar 28 vindmyllurnar verða komnar í gagnið. Miðað við spá Magna gæti uppsett afl þeirra þriggja til fjögurra vindorkuvera sem gætu bæst við á næstu 10-15 árum orðið um 360-480 MW en ekki rúmlega 4.900 MW.
Sú uppbygging er þó ekki í hendi því eins og Ragna benti á í viðtali við Spegilinn er tenging þeirra háð því að búið verði að byggja upp Holtavörðuheiðarlínu og Blöndulínu sem eru hluti af meginflutningskerfi raforku.