Pétur Haukur Jóhannesson skrifar:
Í Kveik 24. nóvember síðastliðinn var spurt: Hver gætir lögreglunnar? Eins og þátturinn ber með sér er ekki vanþörf á þessari spurningu. Svo virðist sem glæpahópar séu farnir að færa sig verulega upp á skaftið og láta afskipti lögreglumanna bitna á einkalífi þeirra.
Hvað hefur breyst?
Ætli það sé loksins orðið hægt að ræða vandamál sem tengjast innfluttu fólki án þess að ákveðnir hópar stökkvi upp á nef sér og leiti að rasistanum sem þarf að slaufa? Látum reyna á það.
Þetta ástand er afleiðing meðvirkni stjórnmálaleiðtoga. Þeir hafa sveiflast eins og lauf í vindi síðustu ár og skipt sér ítrekað af einstökum málum Útlendingastofnunar um leið og einhver brottvísun fær athygli fjölmiðla. Leiðtogar landsins létu draga sig á asnaeyrunum hvað eftir annað til að fylgja straumnum. Eitt dæmi er frá 2015, þegar albönsk fjölskylda fékk ríkisborgararétt eftir fjölmiðlafár. Í október 2026 var faðirinn í þeirri fjölskyldu, Kastriot Pepaj, dæmdur í sjö ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að skipuleggja innflutning á amfetamínbasa. Það væri ekki vitlaust fyrir þingheim að hætta að þvælast fyrir og leyfa Útlendingastofnun að sinna sinni vinnu eftir þeim reglum sem settar eru.
Þetta er bara eitt dæmi sem sýnir hvernig afskipti af störfum framkvæmdavaldsins geta valdið samfélagslegum skaða. Þetta sýnir einnig hvernig raddir í samfélaginu halda þingheimi í hálfgerðri gíslingu meðan stjórnmálamenn þora ekki að standa á móti straumnum. Það vill greinilega enginn vera kallaður rasisti, ekki einu sinni þingmenn. Þingmenn eiga að geta staðið fast í lappirnar. Vissulega eru til dæmi um þingmenn sem geta það, en þeir hafa bara verið allt of fáir hingað til. Ákvörðunarfælni í útlendingamálum er ein afleiðing þess, þar sem stjórnvöld neita að horfast í augu við það sem er raunverulega að gerast. Þingheimur hefði átt að girða sig í brók fyrir löngu og herða þessar reglur allverulega í stað þess að láta stjórnast af færslum á Twitter og athugasemdum á Facebook. Þá er ég ekki að tala um að herða þær í einstökum málum, heldur almennt! Hér á landi eru nefnilega erlendar glæpaklíkur farnar að hreiðra um sig, eins og ítrekað hefur komið fram í fjölmiðlum undanfarið. Við getum ekki haldið áfram á þessari braut.
Hvert hefur það leitt okkur?
Akkúrat á þennan stað, þar sem lögreglumenn þurfa að mæta ítrekuðum hótunum. Markmið þessara glæpahópa er að gera lögreglumenn svo hrædda að þeir sleppi því að eiga afskipti af þeim og að gera lögreglustarfið svo hættulegt og óeftirsóknarvert að enginn vilji starfa við það. Þetta er nýr veruleiki á Íslandi.
Eftir að hafa sjálfur gegnt þessu starfi fyrir fjórtán árum ætla ég að fullyrða að þetta sé eitt vanmetnasta starf sem til er. Lögreglumenn eiga vanalega við fólk á verstu augnablikum lífs þess. Hvort sem fólk missir einhvern, brýtur af sér eða verður fyrir afbroti, þá kemur lögreglan að málinu. Lögreglumenn gera það sem þeir geta til að koma í veg fyrir að brotið sé á okkur. Þeir þurfa að þola endalausar svívirðingar í samskiptum sínum við ölvað fólk, og krafa samfélagsins er að þeir séu alltaf besta útgáfan af sjálfum sér. Því ef þeir misstíga sig, þá er engin miskunn. Ofan á það verða þeir ítrekað fyrir ofbeldi í starfi og núna bætist við ofbeldi utan starfsins.
Af hverju virðist nánast hvaða drullusokkur sem er geta komist upp með að hóta lögreglumönnum?
Kannski er samfélagið orðið svo gegnsósa af linkind og meðvirkni með brotamönnum að þetta er afleiðingin. Glæpamenn eru glamúrvæddir og þeim sýnd endalaus samkennd á meðan brotaþolinn fær svo gott sem enga athygli. Athyglin beinist meira að því hvað brotamaðurinn á erfitt en að skaðanum sem hann olli, og krafan um persónulega ábyrgð flýgur út um gluggann vegna „góðmennsku“ samfélagsins. Því jú, hann er á okkar ábyrgð og við ætlum að laga hann. En brotaþolinn? Hann má éta það sem úti frýs. Í réttarkerfinu virðist oft gleymast að refsing fyrir glæp er ákveðin sanngirni gagnvart brotaþola, og ættingjum í einhverjum tilfellum, og að málið snýst ekki alltaf bara um að laga skemmdu eplin. Þetta snýst líka um að refsa og koma fólki af götunni svo það valdi ekki frekari skaða.
Þessi linkind virðist líka hafa smitast yfir á það hvernig tekið er á þeim sem ráðast gegn valdstjórninni. Það virðist einfaldlega hafa gleymst að vernda þá sem vinna markvisst að því að þú getir áhyggjulaus sent börnin þín í skólann á morgnana. Þessi skítverk eru oftast unnin meðan þú sefur. Ef þróunin heldur áfram í þessa átt verða ekki margir sem leggja á sig háskólanám til þess eins að enda í starfi þar sem þeir lenda persónulega í útistöðum við glæpagengi. Það verður einfaldlega ekki þess virði.
Hver gætir lögreglunnar?
Enginn. Það er enginn sem gætir lögreglunnar.
Þegar lögreglumönnum er hótað er eins og það sé álitið aukaatriði, hluti af starfinu sem þeir verði bara að sætta sig við. Hér er eitthvað mikið að. Það þarf augljóslega að setja miklu meira púður í þau mál sem snúa að ofbeldi gagnvart lögreglumönnum, því þeirra öryggi er okkar öryggi. Auk þess er kominn tími til að benda á fílinn í herberginu og viðurkenna að þessi gegndarlausi innflutningur á fólki er farinn að valda miklum skaða!
Höfundur er tölvunarfræðingur og fyrrverandi lögreglumaður.