Þrír létust og fjórtán björguðust þegar Jökull ÞH fórst rúma hundrað kílómetra austur af Glettingi í óveðri síðdegis í gær. Skipið er þrjátíu ára gamalt, hefur verið í eigu núverandi eigenda í fimm ár og var á grálúðuveiðum þegar áfallið dundi yfir.
GPG Seafood gerir skipið út, eitt þriggja skipa útgerðarinnar, og er með höfuðstöðvar á Húsavík og starfsemi á Raufarhöfn og Bakkafirði. Um 85 manns starfa að jafnaði hjá útgerðinni. Það er í eigu Árninnu Óskar Stefánsdóttur og Gunnlaugs Karls Hreinssonar, sem á einnig stóran hlut í Þórsnesi í Stykkishólmi. Fyrirtækið dregur nafn sitt af útgerðarfyrirtækinu Geira Péturs og af nafni Gunnlaugs. Ágúst Már Gunnlaugsson er framkvæmdastjóri útgerðarinnar.
Fiskiskipið Jökull ÞH 299 var smíðað í Noregi árið 1996. Skipið hét áður Nanoq og var gert út af Arctic Prime Fisheries til veiða við Grænland.
Fyrsta óhappið 2021
GPG Seafood keypti skipið frá Grænlandi í desember 2020 en þar hafði það verið gert út undir nafninu Nanoq. Skipið fór sína fyrstu veiðiferð í maí 2021 og þá sagði Gunnlaugur Karl Hreinsson stjórnarformaður GPG Seafood í samtali við vefinn skipamyndir að veiðiferðin hefði gengið vel en það þyrfti að fínpússa nokkur atriði og fínstilla búnað.
Fyrsta bilunin í skipinu sem greint er frá kemur upp sjö mánuðum síðar, árið 2021, þegar greint er frá því á myndasíðu Þorgeirs Baldurssonar að skipið hafi verið tekið úr flotkvínni á Akureyri eftir að bilun kom upp í kælum utan á skipinu. Til stæði að skipta um kælana þegar skipið færi næst í slipp.
Tæpu ári síðar, í október 2022, strandaði skipið þegar það var að fara frá bryggju á Raufarhöfn. Hvassviðri var á svæðinu og þegar snúa átti skipinu í höfninni feykti vindhviða því upp á grynningar. Niðurstaða Rannsóknarnefndar samgönguslysa var að rekja mætti strandið til vanmats á aðstæðum og rangra stjórntaka.
Vestanátt var þá 14 til 16 metrar á sekúndu samkvæmt skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Snúa þurfti skipinu við í höfninni áður en siglt var út. Samkvæmt framburði skipstjóra feykti vindhviða skipinu upp á grynningar. Skipverjum tókst að losa skipið með því að festa taug í land og nota akkerisvindurnar til að koma því á flot.
Tvö óhöpp 2023
Fjórum mánuðum síðar, í febrúar 2023, strandaði skipið í Húsavíkurhöfn. Skipið var á leið sinni úr höfn þegar það strandaði. Liðsmönnum björgunarsveitarinnar Garðars tókst að losa það.
Eldur kom upp á vinnsluþilfari skipsins í júlí sama ár í kjölfar rafsuðuvinnu. Þá var skipið statt um 60 sjómílur norðaustur af Horni. Fjórtán skipverjar voru um borð og tókst þeim að slökkva eldinn án utanaðkomandi aðstoðar. Skipstjórinn lét útgerðarstjóra vita af eldinum en hvorki skipstjóri né útgerðarmaður sinntu lögbundinni tilkynningarskyldu samkvæmt Rannsóknarnefnd samgönguslysa. Rannsóknarnefndin fékk ábendingu um eldinn þremur dögum síðar. Við rannsókn málsins kom jafnframt í ljós að litlar upplýsingar um brunann höfðu verið færðar í skipsdagbók.
Á síðasta ári var greint frá því á vefnum Skipamyndum Hafþórs Hreiðarssonar að skipið hefði legið um tíma á Akureyri vegna bilunar. Ekki kom fram hvers eðlis bilunin var.
Þá greindi fréttamiðillinn Trölli frá því í maí á þessu ári að bilun hefði komið upp í lensudælu skipsins og það lægi við bryggju á Siglufirði meðan unnið væri að viðgerð.
Ekki liggur fyrir hvað olli lekanum sem varð til þess að skipið sökk í gær. Athygli vekur að aðeins liðu um tíu mínútur frá því að neyðarboð um leka barst frá skipstjóranum þangað til hann tilkynnti að skipið væri á leiðinni niður og skipverjar væru að yfirgefa það. Rannsóknarnefnd samgönguslysa fer nú með rannsókn málsins.
Ekki hefur náðst í Ágúst Már framkvæmdastjóra útgerðarinnar það sem af er degi.