Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar vann þrekvirki þegar skipverjum Jökuls ÞH var bjargað um borð í TF-GRÓ, sem flutti þá til Egilsstaða. Fjórtán komust lífs af, en þrír fórust.
Hér er farið yfir atburði kvöldsins 25. nóvember í tímaröð.
17:00
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarboð frá skipstjóra fiskiskipsins laust eftir klukkan 17 um að leki væri kominn að skipinu. Vont veður og mikil ölduhæð var þar sem skipið sökk, um 60 sjómílur austur af landinu. Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar sögðu áhöfn skipsins að fara í björgunargalla.
Skömmu síðar lýsti skipstjórinn yfir neyðarástandi og upplýsti stjórnstöð um að skipverjar væru að yfirgefa skipið.
17:44
Viðbragðsáætlun var virkjuð klukkan 17:44, einnig aðgerðastjórnir á Norðurlandi eystra, Austurlandi og höfuðborgarsvæðinu. Þyrlusveit á TF-GRÓ var kölluð út, einu þyrlu Landhelgisgæslunnar sem var til taks. Áhöfn á eftirlitsflugvélinni TF-SIF og þrjú björgunarskip voru kölluð út og öllum fiskiskipum fyrir austan land stefnt að slysstað.
Fjórir togarar voru næstir Jökli ÞH, uppsjávarskipið Svanur RE, togarnir Harðbakur EA, Skinney SF og Vestmanney VE og frystitogarinn Blængur NK frá Neskaupstað. Svanur RE var fyrstur á vettvang.
20:00
TF-SIF kom á vettvang laust eftir átta og reyndi að kasta björgunarbátum til skipverja en þeir náðu ekki til þeirra.
21:15
Klukkan korter yfir níu kom þyrla Landhelgisgæslunnar á staðinn og fiskiskip sem beðin voru að halda á vettvang. Mikill mótvindur var og áhöfn þyrlunnar lagði sig í hættu við að koma skipverjum til bjargar. Flogið var 60 sjómílur frá landi, sem er mun lengra en almennt er heimilt án þess að önnur þyrla sé til taks.
23:18
Áhöfninni á TF-GRÓ tókst að hífa skipverja upp og flytja þá til Egilsstaða. Björgun lauk skömmu eftir klukkan ellefu.
23:40
Þyrlan lenti á flugvellinum á Egilsstöðum um 20 mínútum fyrir miðnætti. Hluti áhafnarinnar á fiskiskipinu var fluttur til Reykjavíkur í nótt með eftirlitsflugvélinni Sif og flugvél Norlandair.