Sigurður Ásgeirsson þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni gagnrýnir stöðu öryggismála á Íslandi á Facebook í dag. Aðkoma hans að útkallinu hafi ekki verið eins og hann hefði óskað sér. Fjórtán var bjargað á lífi en þrír létust þegar línuskipið Jökull ÞH sökk austur af landinu.
Sigurður og áhöfn hans voru í biðstöðu á Egilsstöðum ef áhöfnin sem vann verkið myndi örmagnast eða ef leit yrði löng. Sigurður segir það hafa verið ömurlega tilfinningu.
Gæslan eigi ekki nógu margar þyrlur til að halda fullu viðbragði á tveimur þyrlum.
„Við náttúrulega höfðum engin tæki. Ef þyrlan hefði farið niður þá hefðum við misst félaga þarna. Það er klárt mál. Og þess að utan tóku þessar aðgerðir tvo klukkutíma. Það mætti nú segja að það hefði kannski tekið klukkutíma með tveimur vélum og ég held að það hafi mögulega skipt verulega miklu máli.“
Þá sé viðbragðstími langur þegar aðeins sé ein starfsstöð á suðvesturhorni landsins. Öryggi björgunarfólks hafi ekki verið tryggt.
„Þetta er langt fyrir utan þær öryggisreglur sem Landhelgisgæslan hefur. Það má ekkert út af bregða ef það verður eftir sigmaður í sjónum eða þyrlan fer niður því þá er í raun og veru bara áhöfnin á skipinu og þyrlunni... þá er nánast hægt að afskrifa þau.“
Hann segir óásættanlegt að setja björgunarfólk í þessa stöðu.
„En ég held að fólkið sem vinnur við þetta og þessi áhöfn sem gerði þetta, fólk náttúrulega getur ekki horft fram hjá þessu. Það er búið að stilla þér algjörlega upp við vegg.“