Madagaskar er meðal fátækustu ríkja heims og 80 prósent íbúa lifa undir alþjóðlegum fátæktarmörkum. Varað hefur verið við því að hungursneyð í landinu fari vaxandi á næstu mánuðum.
Vegna El Niño-veðrafyrirbrigðisins stefnir í að allt að rúm tíu prósent þjóðarinnar standi frammi fyrir hungursneyð. Fjöldinn í þessari stöðu hefur tvöfaldast síðan í sumar. Það er skilgreint þannig að geta ekki veitt sér og fjölskyldu sinni eina máltíð á dag.
Madagaskar er eyja í Indlandshafi austur af Mósambík og er rúmlega fimm sinnum stærri en Ísland. Þar búa tæpar 33 milljónir manna. Þrálátar hitabylgjur og þurrkar eru í suðurhlutanum og í Androy-héraði er fæðuöryggið minnst vegna uppskerubrests.
Kennsla við ræktun harðgerra korntegunda
Fólk er farið að rækta harðgerari korntegundir en áður sem standast breytt loftslag og þar kemur aðstoð frá Íslandi til skjalanna.
„Við hjá Barnaheillum erum að reka bændaskóla í fimm þorpum á Madagaskar þar sem 150 bændur fá leiðsögn í því hvernig er hægt að rækta korn sem þolir þessa þurrka. Þetta er til dæmis maís og aðrar korntegundir og svo erum við að halda matreiðslunámskeið fyrir fólkið í þorpunum til þess að efla það í að nýta fæðuna og halda næringunni sem bestri úr fæðunni,“ segir Kolbrún Pálsdóttir, verkefnastjóri erlendra verkefna hjá Barnaheillum.
Verkefni Barnaheilla á Madagaskar, sem hefur staðið síðan í fyrra, er í samstarfi við deild samtakanna í landinu og utanríkisráðuneyti Íslands. Eitt af markmiðunum er að efla samfélagið til að nýta fæðuna sem landið gefur af sér.
Samstarfið við Barnaheill á Madagaskar er náið og fóru fulltrúar samtakanna hér á landi í vettvangsferð í síðasta mánuði.
Meðal þeirra sem þau hittu er Miriam, 22 ára bóndi og nemandi í fyrrnefndum bændaskóla. „Hún er líka í forsvari fyrir mæðrahóp. Hún sagði mér frá því að hún hefði misst barnið sitt í fyrra og það er því miður eitt af fjölda barna sem deyr fyrir fimm ára aldur á svæðinu. Hún er í forsvari fyrir hópinn og leggur ríka áherslu á að börn fái góða fæðu,“ segir Kolbrún.
Reyna að ná uppskerunni fyrir El Niño-tímann
Starfið tekur mið af spám um sérlega öflugan El Niño í vetur. „Við erum núna að leggja mikla áherslu á að bændurnir nái að setja niður kornið og ná í uppskeruna áður en þessi yfirvofandi hætta byrjar, svo við erum að hjálpa þeim og efla þá í landbúnaði áður en þessi áhrif koma,“ segir Kolbrún.
Skima fyrir vannæringu meðal barna
Landbúnaður er helsti atvinnuvegurinn og afleiðinga uppskerubrests síðustu ár gætir víða. Áætlað er að yfir hálf milljón barna undir fimm ára þjáist vegna næringarskorts eða sé í hættu vegna hans.
Sjálfboðaliðar samtakanna mæla hvort börn þjáist af vannæringu. Kolbrún segir mælingarnar gerðar vikulega. Reynt sé að bera kennsl á vannæringu áður en börnin verði alvarlega veik. „Í kjölfarið eru þau send á heilbrigðisstofnanir og fá þá viðeigandi aðstoð sem við erum líka að veita. Við erum að veita þá aukanæringu til barna sem virkilega þurfa á því að halda.“
Hér má sjá nokkrar myndir frá daglegu lífi íbúa Marolava í sunnanverðu Madagaskar