Í úrskurði Landsréttar þess efnis, sem kveðinn var upp í gær og staðfesti úrskurð Héraðsdóms Suðurlands, segir að maðurinn hafi krafist þess að lagt yrði fyrir lögreglustjórann á Suðurlandi að aflétta tafarlaust haldi á Acer fartölvu, tveimur Playstation 5 leikjatölvum, Playstation 4 leikjatölvu, Xbox leikjatölvu, Samsung farsíma og OnePlus Nord 3 farsíma.
Málið eigi rætur sínar að rekja til rannsóknar lögreglustjórans á Suðurlandi á ætluði kynferðisbroti þar sem maðurinn hafi réttarstöðu sakbornings. Í janúar síðastliðnum hafi lögregla framkvæmt húsleit og haldlagningu á heimili mannsins. Í tengslum við aðgerðirnar hafi maðurinn veitt leyfi fyrir rannsókn og gagnaöflun úr tækjunum.
Í niðurstöðu úrskurðarins segir að í málinu liggi fyrir að lögregla hafi lagt hald á téða muni vegna rannsóknar á ætluðum kynferðisbrotum mannsins. Þá liggi fyrir að rannsókn á mununum sé ekki lokið, að því frátöldu að við skoðun á OnePlus Nord 3 farsímanum hafi fundist nektarmyndir af konum og ætlun lögreglu sé að andlitsmynd af brotaþola hafi verið skeytt inn á myndirnar. Ljóst sé að mati dómsins að innihald þess síma geti haft sönnunargildi og jafnframt sé mögulegt að síminn geti orðið andlag kröfu ákæruvalds um upptöku.
Um aðra muni liggi ekki fyrir að rannsókn á innihaldi þeirra sé lokið, en það hafi verið staðfest af hálfu fulltrúa lögreglustjóra við fyrirtökuna málsins. Þrátt fyrir að óhæfilega langur tími sé liðinn frá því að munirnir voru haldlagðir án þess að rannsókn hafi farið fram á efnisinnihaldi þeirra, þá breyti það ekki því að skilyrði halds séu enn fyrir hendi og að ekki sé komið það tímamark sem lýst er í sakamálalögum um það hvenær beri að skila haldlögðum munum.
Samkvæmt því beri að hafna kröfum mannsins í málinu.