Hinn 18 ára gamli Ásgeir Eli Gerðarson, skipverji sem var um borð í skipinu Jökli ÞH þegar það sökk, segir að dagurinn hafi byrjað eins og venjulegur dagur. Hann og aðrir skipverjar hafi verið við vinnu við að leggja út net þegar skipið byrjaði að sökkva.
„Við vorum búnir að leggja einni trossu og svo byrjum við á þeirri seinni og svo byrjar hlerinn sem við hleypum netunum út, það er svona stór gluggi aftan á skipinu, að lokast af sjálfu sér,“ segir Ásgeir. „Þá náttúrulega getum við ekki gert neitt og svo er þetta að taka allt of langan tíma og ég kíki niður.“
„Þá er bara sjór um allt og trossan er bara á fullri ferð, bara hægri, vinstri bara alls staðar,“ segir hann.
Eitthvað hafi sagt honum að fylgja bátsmanninum
Hann hafi ekki vitað hvað olli því að sjór byrjaði að leka inn í skipið en hafi hugsað með sér að dælurnar væru stíflaðar. Síðar hafi hann séð bátmanninn á skipinu hlaupa um stiga og einhver hafi sagt honum að fylgja honum eftir.
„Um leið og ég kemst upp og er fyrir aftan brúnna þá sé ég menn taka flotgalla úr skápnum og ég fer náttúrulega bara beint í skápinn og tek flotgalla og dæli bara í næsta mann,“ segir hann.
Vantaði flotgalla fyrir þrjá
Ekki reyndust nægilega margir gallar í skápnum. Þrjá skipverja vantaði enn galla, þar með talinn Ásgeir.
„Þannig við förum að leita upp í brú og þar eru þrír aðrir flotgallar. Við komumst allir í þá og skipið byrjar að sökkva stjórnborðsmegin aftast,“ segir hann.
„Svo er báturinn eiginlega bara alveg að fara og við sitjum níu hásetar þarna á hliðinni á bátnum, bara alveg á hliðinni og erum að binda okkur saman með lásum sem eru á flotgöllunum okkar. Við erum að reyna að binda okkur saman og ég er seinastur í röðinni og ég er að reyna að binda mig við næsta mann. Svo kemur alda og skýtur okkur öllum burt.“
Ásgeir segir að hann hafi ekki verið bundinn við neinn annan og orðið viðskila við aðra í hópnum. Fimm til tíu mínútum síðar hafi honum tekist að synda til hópsins.
„Næ loksins að tengja mig. Þá erum við bara með björgunarhring og talstöð í þessum níu manna hóp og þrír gallarnir voru með blikkandi ljós, annaðhvort þrír eða fjórir gallar,“ segir Ásgeir.
„Það er það eina sem var hægt að nota til að hjálpa Landhelgisgæslunni að finna okkur.“
Þessi talstöð hélt einhverjum eldi gangandi í hausnum á okkur öllum
Tveir hópar hafi myndast og segir Ásgeir að nokkuð langt hafi verið á milli þeirra. Hans hópur hafði talstöð og reyndu skipverjar að ná sambandi við Landhelgisgæsluna. Það hafi tekist um tveimur tímum eftir að þeir fóru í sjóinn.
„Þá voru þeir líka bara alltaf á talstöðinni,“ segir Ásgeir. „Endalaust að spyrja hvar þyrlan væri og þú veist, hvar allir eru.“
Ásgeir segir þetta hafa bjargað lífi mannanna. „Þessi talstöð hélt einhverjum eldi gangandi í hausnum á okkur öllum. Við náðum að þrauka þetta seinasta þrep þegar við fréttum að þyrlan væri ekkert það langt frá,“ segir hann.
TF-SIF flugvél gæslunnar var fyrst á vettvang og reyndi að sleppa björgunarbátum í sjóinn fyrir áhöfnina. Það hafi þó ekki gengið „Bátarnir lentu aðeins of langt frá og öldurnar bara tóku þá,“ segir Ásgeir.
Ásgeir segir að það hafi hjálpað honum að hugsa ekki um sitt eigið ástand á meðan hann var í sjónum. Hann hafi frekar reynt að hlúa að öðrum.
„Ég held að það hafi hjálpað mér mjög mikið að einbeita mér ekki að mér sjálfum og ástandinu mínu því ég var í betra ástandi en flestir þarna,“ segir hann. „Ég sagði líka bara við mig áður en báturinn sökk: ‚Ég er ekki að fara að deyja hérna, ég er ekkert að fara hér,‘“ segir Ásgeir. „Ég hélt því eiginlega bara gangandi allan tímann.“
Að endingu var Ásgeir seinasti maðurinn sem var hífður lifandi úr sjónum úr sínum hópi um kvöldið. Þrír fórust alls í slysinu: Jacek Belina, Eggert Ellertsson og Aðalsteinn Steinþórsson.
Öskruðu úr gleði þegar þeir sáu þyrluna
Eftir um 4 til 5 klukkutíma í sjónum kom þyrla Landhelgisgæslunnar á vettvang. „Við öskruðum allir úr gleði,“ segir Ásgeir en eftir það hafi sigmaður byrjað að ferja menn í þyrluna.
„Sigmaðurinn kemur niður og byrjar að hífa nokkra upp og það eru nokkrir í alveg vel slæmu ástandi,“ segir Ásgeir. Sjálfur hafi hann haldið í einn skipverja sem hafi verið að detta út og hafi því bent sigmanninum á að taka hann fyrst með handabendingum.
„Ég er búinn að vera að kippa í hann, en hann er bara meðvitundarlaus og gargar nafnið hans en hrekkur við áður en sigmaðurinn kemur,“ segir Ásgeir.
Þá hafi verið búið að hífa flesta upp. Ásgeir og þrír aðrir hafi enn verið í sjónum.
„Ég sé einn manninn horfandi beint niður, bara líflausan,“ segir Ásgeir.
Hann og annar háseti hafi reynt að snúa honum við til þess að sjá hvort einhver von væri.
„Svo kemur sigmaðurinn aftur og ég bendi honum á að taka hann fyrst,“ segir Ásgeir en þegar sigmaðurinn náði til mannsins hafi Ásgeir vitað að hann væri látinn. Einn annar háseti hafi líka verið látinn nærri Ásgeiri. „Ég var búinn að vera að reyna að halda þeim uppi í góðan tíma en það bara gekk ekki,“ segir Ásgeir.
Vill þakka öllum sem komu til hjálpar
Að lokum hafi Ásgeir komist í þyrluna og björgunaraðgerðum hafi verið beint að hinum hópnum sem hann varð viðskila við þegar báturinn sökk. Einn skipverji kom látinn úr sjónum úr þeim hópi.
„Svo erum við fluttir á Egilsstaði og það var tekið vel á móti okkur,“ segir Ásgeir sem vill koma þakklæti til allra viðbragðsaðila og annarra sem tóku þátt í aðgerðunum.
Hann segist einnig finna fyrir miklum hlýhug frá öðrum í samfélaginu.
„Ég er með mjög stórt og gott net alls staðar, frá fjölskyldu og öðru fólki,“ segir Ásgeir.
Ég labbaði inn í apótek í gær og þar var gömul kona að vinna og hún brotnaði niður og sagði: „Djöfull er gott að sjá að þú ert kominn heim,“ segir Ásgeir.