Sjávarflóð urðu einnig víða við ströndina.
Veðrið náði langt inn í Bandaríkin og var til að mynda slegið snjókomumet í Missouri, þar sem snjókoman mældist mest nærri því fjörutíu sentímetrar í gær.
Ástandið er byrjað að skána en veðurfræðingar segja að það muni taka veðrið töluverðan tíma að ganga niður. Úrkoman er enn talsverð víða í Bandaríkjunum. Ekki er vitað til þess að einhver hafi skaðast vegna veðursins.
Í gær misstu um níu hundruð þúsund heimili og fyrirtæki rafmagnið á austurströndinni. Nú stendur þessi tala í rúmlega sex hundruð þúsund, samkvæmt AP-fréttaveitunni. Viðgerðir hafa gengið hægt í Pennsylvaníu og New Jersey, samkvæmt frétt CNN.
Björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar hafa staðið í ströngu við að bjarga fólki úr flóðum en Þakkargjörðarhátíðin er um helgina og leggja þá fjölmargir Bandaríkjamenn land undir fót.
New York Times segir að hundruðum flugferða hafi verið aflýst í gær og að rúmlega tvö þúsund ferðir hafi tafist. Hætt var við rúmlega hundrað ferðir í dag og tæplega sjö hundruð töfðust.