„Markmið þessarar ríkisstjórnar hefur verið að ná tökum á rekstri ríkisins einmitt til þess að við getum brugðist við óvæntum atburðum,“ segir Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra.
Hann segir að hægt sé að bregðast við útgjöldum sem fylgja fjölgun þyrlna Landhelgisgæslunnar vegna þess að afgangur er af rekstri ríkisins.
Landhelgisgæslan hefur þrjár björgunarþyrlur til umráða. Þær eru allar í Reykjavík. Þegar Jökull ÞH sökk á miðvikudag var aðeins ein þeirra tiltæk.
Bæta við þyrlu á Akureyri
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að flýta því að bæta fjórðu þyrlunni við á Akureyri. Grunnur verður lagður að því að bæta henni við á þessu ári.
„Við þurfum að koma upp aðstöðu á Akureyri. Áherslan fyrsta árið verður að tryggja að við getum byggt hana upp. Hún þarf að vera til staðar áður en við getum komið með þyrlu þangað,“ segir Daði Már.
Á sama tíma verður reynt að útvega þyrlu.
„Ég held að íslenska þjóðin standi öll saman“
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lengi talað fyrir því að hafa Landhelgisgæsluþyrlu á Akureyri. Hann lagði það til á fundi fjárlaganefndar Alþingis í morgun að þingið sameinaðist um fjölgun þyrla.
Í samtali við fréttastofu segir hann að hann tryði á samstöðu í þinginu.
„Ég [...] lagði það til í fjárlaganefnd í morgun að nefndin myndi koma sameinuð á bakvið breytingatillögu inn í annarri umræðu fjárlaga um að hefja þetta ferli með að fjölga þyrlum Landhelgisgæslunnar. Mér fannst undirtektirnar góðar og ég vona svo sannarlega að það nái fram,“ segir Njáll Trausti.
Daði Már telur að vegna þess að svigrúm sé til staðar sé auðveldara að standa að verkefnum sem þessum.
„Ég held að íslenska þjóðin standi öll saman þegar það kemur að þessum verkefnum. Þannig hefur það verið og það kæmi mér mjög á óvart ef svo yrði ekki áfram.“