Kaldvík og Múlaþing hafa náð tímabundnu samkomulagi um hafnargjöld á Djúpavogi. Eldisgjaldið lækkar um meira en helming. Framkvæmdastjóri laxasláturhússins segir fyrirtækið og sveitarfélagið jafn óánægð með upphæðina. Framtíðargjald verður reiknað af óháðum ráðgjöfum.
Hafnir þar sem eldislaxi er landað hafa verið í algjörri óvissu um hversu miklar tekjur þær fá af laxeldi. Sums staðar, eins og í Vesturbyggð, er höfnin mjög háð þeim tekjum en eftir dóm Hæstaréttar varð ljóst að hafnirnar gátu ekki haldið áfram að rukka eldið um aflagjald eins og af veiddum fiski.
Segja má að átökin snúist meðal annars um hvort laxeldisfyrirtækin eigi aðeins að borga fyrir þann kostnað sem hlýst af hafnarnotkun þeirra og hvað sé talið með í þeim kostnaði.
Kaldvík og Múlaþing gerðu upp árin 2025 og 2026
Í Múlaþingi landar Kaldvík eldislaxi á Djúpavogi. Vegna óvissunnar höfðu löndunargjöld til hafnarinnar ekki verið gerð upp fyrir næstum tvö ár en fyrr í þessum mánuði náðist samkomulag. Elís Hlynur Grétarsson stýrir sláturhúsi Kaldvíkur og segir að samningurinn sem gildir um 2025 og 2026 hljóði upp á 3,5 krónur á slægt kíló.
„Það er minna en það sem sveitarfélagið var að rukka áður og kemur út sem lækkun frá því sem áður var. En svo byggir samningurinn í rauninni á því að það verður fenginn þriðji aðili sem kemur til með að greina hver þörfin er á að gjaldið verði en það yrði þá miðað við slægt kíló,“ segir Elís.
Áður hafi gjaldið verið um 7,6 krónur á kíló og þá var miðað við óslægt. Í ár hefði það, miðað við eldra fyrirkomulagið og 17 þúsund tonna slátrun, gefið um 145 milljónir í eldisgjald til hafnarinnar. Nú verður gjaldið um 60 milljónir.
Þjónustugjald, kostnaðargjald eða sérstakur skattstofn
Hann telur að KPMG muni við útreikning á framtíðargjaldi aðallega miða við að þetta verði þjónustugjald en einnig verði horft til þess hvaða innviði þurfi að byggja upp við höfnina. Laxeldið eigi aðeins að standa undir hluta þess kostnaðar enda fleiri sem nota höfnina. Elís segir að koma þurfi í ljós hvort framtíðargjaldið endi í hærri eða lægri tölu en þessi bráðabirgðasamningur segir til um.
„Allavega var það þannig að báðir aðilar sættust á þetta gjald. Og við getum sagt að báðir aðilar voru jafn óhamingjusamir með það þannig að þetta hlýtur þá að vera sanngjarnt gjald. Það sem er verið að meina með því að fá óháðan aðila er að það sé ekki verið að blanda tilfinningum í málið heldur greina raunkostnað sem hlýst af þessari starfsemi,“ segir Elís Hlynur Grétarsson, framkvæmdastjóri laxasláturhúss Kaldvíkur á Djúpavogi.
Rétt er að taka fram að höfnin á Djúpavogi fær fleiri gjöld frá Kaldvík en einungis eldisgjaldið af lönduðum afla.