Stefnt er að því að flest rafræn þjónustukerfi Reykjavíkurborgar komist í lag annaðhvort í dag eða um helgina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Netárás var gerð á kerfin á miðvikudaginn og reyndist nauðsynlegt að taka sum þeirra úr sambandi tímabundið til að hefta útbreiðslu árásarinnar.
Samkvæmt tilkynningunni verða kjarnakerfi og önnur mikilvæg í forgangi til að draga úr áhrifum röskunarinnar á íbúa og starfsfólk borgarinnar.
Mögulegt er að síðustu kerfi verði sett í gang strax eftir helgina.
Starfsfólk Reykjavíkurborgar vinnur ásamt sérfræðingum Syndis og CERT-IS að yfirferð svo hægt sé að tryggja að óhætt sé að setja þau aftur í gang. Skipt verði um lykilorð og aðgangslykla í viðkomandi kerfum.
Áfram er unnið að því að greina hvernig árásaraðilar komust inn í kerfin og hvaða gögn þeir gætu hafa nálgast.