Þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar þar sem rætt var við Höllu. Líkt og fram hefur komið eru áratugir síðan sambærilegt sjóslys varð hér á landi.
„Ég er auðvitað harmi slegin eins og þjóðin öll og í senn sendi ég einlægar samúðarkveðjur til fjölskyldna þeirra sem að fórust og ástvina þeirra allra en líka þakklæti til þeirra sem unnu þrekvirki við gríðarlega erfiðar aðstæður,“ segir Halla. Hún segir tilfinningarnar blandast af djúpri sorg yfir missinum og einlægu þakklæti til þeirra sem björguðu fleiri mannslífum en á horfðist um tíma.
„Ég held að á svona tímum séu allar tilfinningar skiljanlegar. En ég hvet okkur öll til að vera góð hvert við annað, taka utan um hvort annað og leyfa samstöðu og kærleika til að ráða för. Við þurfum að eiga uppbyggilegt samtal og ráða bót á mörgu svo að við lærum af þessari reynslu og undirbúum okkur betur fyrir möguleg framtíðartilvik. En í dag skiptir samstaða og kærleikur og samúð til þeirra sem eiga um sárt að binda öllu máli.“