„Mörg eiga um sárt að binda vegna slyssins og sömuleiðis geta svona alvarlegir atburðir ýft upp gömul sár,“ segir Elfa Dögg S. Leifsdóttir, sálfræðingur og teymisstjóri hjá Rauða krossinum.
Í svari frá Rauða krossinum um þá aðstoð sem var veitt kemur fram að auk þess hafi aðstandendum verið boðið að safnast saman í húsnæði útgerðarinnar á Húsavík sem og í höfuðstöðvum Rauða krossins í Reykjavík.
„Þar tóku sjálfboðaliðar úr viðbragðshópum Rauða krossins á móti fólki ásamt fulltrúum annarra viðbragðsaðila,“ segir í svarinu.
Áfallahjálp enn í boði
Áfallahjálp stendur aðstandendum og skipverjunum áfram til boða. Auk Rauða krossins er hægt að leita til heilsugæslu í síma 1700 og félagsþjónustu sveitarfélaga sem og til þjóðkirkjunnar (afallahjalp@kirkjan.is).
„Við hvetjum þau sem óska aðstoðar og stuðnings að hafa samband við 1717, hvort sem það eru ástvinir skipverjanna, þau sem komu að björgunaraðgerðunum eða aðrir sem finna til vanmáttar eða vanlíðunar vegna slyssins.“
Hjálparsími Rauða krossins 1717 er opinn allan sólarhringinn og þangað geta allir leitað og fengið stuðning, hlustun og ráðgjöf.