Verðbólgan var 5,8 prósent í nóvember. Það er lítið eitt minna en í október þegar hún var 5,9 prósent.
Meðal þess sem olli því að verðbólgan minnkaði milli mánaða er að flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 21,9% og föt og skór um 3,4%. Á móti kemur að reiknuð húsaleiga, kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði, hækkaði um 0,5%.
Verðbólga er enn langt yfir bæði markmiði Seðlabankans (2,5%) og vikmörkum hans (4,0%). Stjórnendur bankans spá því að verðbólga minnki hratt á næsta ári og verði komin í 3% að ári.