Skipstjóri á Jökli lýsti yfir neyðarástandi upp úr klukkan fimm síðdegis í gær. Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar báðu áhöfn að klæða sig í björgunargalla og skipstjóri tilkynnti stjórnstöð í framhaldinu að skipverjar væru að yfirgefa skipið. Í stjórnstöð í Reykjavík var hægt að fylgjast með því þegar hver skipverjinn á fætur öðrum fór í sjóinn.
Ekki liggur fyrir hvers vegna skipið byrjaði að leka. Annar björgunarbáturinn var fastur og hinn rak í burtu í slæmu veðri á vettvangi. Þrjár klukkustundir liðu þar til eftirlitsflugvélin TF-SIF mætti á vettvang og lýsti forstjóri Landhelgisgæslunnar því á blaðamannafundi í morgun að viðvera vélarinnar hefði gefið skipverjum í sjónum von eftir þrjá tíma í köldum sjó. Gúmmíbátum var kastað úr vélinni en þeir náðu ekki til skipverja.
Um klukkan 21 eða fjórum klukkustundum eftir neyðartilkynninguna mætti þyrla Landhelgisgæslunnar á svæðið. Þyrlan hafði ekki getað flogið yfir hálendið vegna aðstæðna og lenti á Hornafirði til að fylla á eldsneytisbirgðar. Þá var allur aukabúnaður fjarlægður úr vélinni til að auka burðargetu hennar sökum fjölda skipverja sem þurfti að bjarga.
Aðgerðir á vettvangi stóðu yfir í um tvær klukkustundir. Þyrlan lenti svo með áhöfnina á Egilsstaðaflugvelli rétt fyrir miðnætti. Fjórtán skipverjar gengu frá borði en þrír létust. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru hinir látnu á fertugs- til sextugsaldri.
Vísir var í beinni útsendingu frá blaðamannafundi forsætisráðherra, dómsmálaráðherra og forstjóra Landhelgisgæslunnar í morgun.
Fréttin hefur verið uppfærð. Í fyrri útgáfu kom fram að allir skipverjar hefðu verið karlmenn. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.