Sögusagnir um vinslitin fóru á loft eftir tískusýningu Victoria's Secret í október þar sem stöllurnar sáust ekkert saman eftir að hafa verið óaðskiljanlegar um árabil. Hin púertóríkanska Smalls virtist gangast við dramanu þegar hún birti nokkrar kryptískar færslur um óheiðarleika og svik.
Smalls var gestur hjá Recho Omondi í tískuhlaðvarpinu The Cutting Room Floor í vikunni og var þar spurð hvort það væri rétt að vinkonurnar hefðu ekki tekið neinar myndir af sér saman á tískusýningunni í síðasta mánuði.
Sjá einnig: Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara
„Það er rétt, ég greindi frá því sjálf,“ sagði Smalls. „Fólk tók eftir því vegna þess að ég fjarlægði allar myndir af henni af Instagram-inu mínu og hætti að fylgja henni fyrir mörgum mánuðum,“ bætti hún við um Swanepoel.
„Því miður var það orsakavaldurinn“
Eftir að fólk hélt áfram að velta vöngum yfir málinu í ummælum við færslur Smalls segist hún hafa ákveðið að taka allan vafa af málinu og skrifa í færslu: „Ég er ekki vinur þeirra sem stinga aðra í bakið.“ Smalls staðfesti síðan í hlaðvarpinu að vinslitin hefðu átt sér stað í apríl síðastliðnum.
„Tengdust þessi vinasvik Tom Brady?“ spurði Omondi síðan og vísaði þar í samband Brady og Swanepoel sem fjölmiðlar greindu frá í október.
Sambandið hófst eftir að Brady hafði verið að slá sér upp með Smalls en fyrir það hafði hann verið að slá sér upp með annarri fyrirsætu, hinni rússnesku Irinu Shayk. Brady var svo giftur ofurfyrirsætunni Gisele Bündchen frá 2009 til 2022.
„Því miður var það orsakavaldurinn,“ staðfesti Smalls og bætti við: „Ég átti í sambandi með þessari manneskju yfir átta mánaða tímabil.“
Þremur mánuðum eftir að Smalls hætti að slá sér upp með Brady hafi Swanepoel sent henni skilaboð og viljað tala við hana.
„Við höfum aldrei verið á krossgötum þar sem við höfum þurft að eiga svona alvarlegt samtal og eina samtalið sem við áttum var um mann, nánar tiltekið mann sem ég var nýbúin að vera að hitta,“ sagði Smalls.
„Ég er fullorðin, ég þarf ekki leyfi“
Smalls sagði vinskap hennar og Swanepoel hafa náð fimmtán ár aftur í tímann þar sem þær hefðu berskjaldað sig hvor við aðra, átt náin samtöl, fylgst hvor með annarri í gegnum hæðir og lægðir og óformleg sem formleg ástarsambönd. Smalls hefði trúað Swanepoel fyrir persónulegum hlutum í öruggu rými vinskaparins.
Jafnframt tók Smalls fram að á meðan hún var að slá sér upp með Brady hafi Swanepoel hjálpað henni að skrifa honum skilaboð og veitt henni ráð.
„Hún vissi persónulega hluti, jafnvel skaðlega mér, sem ég hafði deilt með henni. Ég hafði bara verið opin við vinkonu því ég hélt að það væri öruggt rými,“ sagði Smalls. Hún hefði verið orðlaus þegar Swanepoel gekkst við því að vera byrjuð með Brady.
Omondi spurði þá hvernig Swanepoel hefði lýst tilkomu sambandsins.
„Hún virtist vera að réttlæta gjörðir sínar, að það sem ég hefði átt hefði ekki verið alvöru eða bara hversdagslegt. Hún gerði lítið úr upplifun minni til að láta sér líða betur með aðstæðurnar,“ sagði Smalls og bætti við að það hefði gert hana brjálaða.
Swanepoel hefði gert lítið úr Smalls og vinskap þeirra með því að hugsa ekki einu sinni út í tilfinningar hennar. „Viðhorfið var: Ég er fullorðin, ég þarf ekki leyfi,“ sagði Smalls um afstöðu Swanepoel.
Smalls sagði að vinkonurnar hefðu verið svo nánar að þær hefðu ætlað sér að fjárfesta í sameiginlegu sumarhúsi. Ljóst væri að áralangur vinskapur tryggði ekki
„Ég veit ekki hvað hún sá sem henni fannst þess virði að fórna þessu,“ sagði Smalls um ákvörðun Swanepoel að slá sér upp með Brady. „Ég vona að hún fái það sem hún vill og að djúsinn hafi verið kreistingsins virði.“
Fyrst og fremst snerist sársaukinn um að syrgja vinskap sem hún hafði talið að myndi endast að eilífu. Swanepoel hefur ekki tjáð sig um málið en sagðist bera mikla virðingu fyrir Smalls.