Faraldurinn er sá næststærsti sem vitað er um. Sá stærsti varð í Vestur-Afríku frá 2014 til 2016. Þá smituðust tæplega 29 þúsund manns og um ellefu þúsund dóu. Fastlega er búist við því að faraldurinn í Austur-Kongó muni taka fram úr Vestur-Afríkufaraldrinum, ef hann hefur ekki þegar gert það.
Í frétt Reuters er bent á að einungis fimmtán prósent þeirra sem greinast smitaðir hafi tengst öðrum sem vitað er til að hafi smitast. Það bendir til þess að veiran sé í töluvert meiri dreifingu en opinber gögn fanga.
Þessi tiltekni faraldur greindist fyrst í vor og hefur útbreiðsla hans verið mjög hröð. Hann er að miklu leyti bundinn við austurhluta Austur-Kongó en þar hafa átök lengi geisað milli hermanna, uppreisnarmanna og glæpamanna.
Þessi átök hafa komið niður á baráttunni gegn ebólu og heilbrigðisstarfsfólk hefur þar að auki orðið fyrir mörgum árásum heimamanna sem trúa jafnvel ekki á tilvist veirunnar og saka starfsfólkið um að skaða fólk.
Sameinuðu þjóðirnar vöruðu í gær við því að vegna átaka hefðu heilbrigðisstarfsmenn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar setið fastir á sjúkrahúsi í landshlutanum frá því á laugardaginn en þeim mun hafa verið bjargað í gær.
Ekkert bóluefni til
Þrjár mismunandi veirur valda ebólu og dreifast þær manna á milli með líkamsvessum. Ebóla getur valdið miklum blæðingum og dauða. Engin lækning er til gegn ebólu en helmingur þeirra sem smitast deyr, samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, en það hefur verið mismunandi milli faraldra.
Til er bóluefni gegn einungis einni af veirunum sem valda ebólu. Þessi faraldur er vegna dreifingar Bundibugyo-veirunnar en ekkert bóluefni er til við henni, né meðferðarúrræði. Hún er sú sjaldgæfasta af veirunum þremur sem valda ebólu og hefur einungis tvisvar sinnum áður verið í dreifingu, svo vitað sé.
Þetta er sautjándi faraldurinn í Austur-Kongó síðan ebóla greindist fyrst þar árið 1976. Talið er að veikin hafi fyrst borist í menn úr leðurblökum. Talið er að um fimmtán þúsund manns í Afríku hafi dáið vegna ebólu á undanförnum fimmtíu árum.
Síðasta faraldri í Austur-Kongó lauk formlega í maí 2021.