Sjómenn eru í sárum út um allt land eftir tíðindi gærdagsins að sögn Valmundar Valmundssonar formanns Sjómannasambands Íslands. Hann segir mikilvægt að mönnum gefist tími til að syrgja.
„Ég á ekki orð til að lýsa því hvernig þetta náðist að ná öllum úr sjónum og koma þeim til lands, þetta er með hreinum ólíkindum. Fyrir það ber að þakka, áður en við förum að kenna einhverjum um, við eigum ekki að vera í þeirri umræðu í dag, við eigum fyrst og fremst að syrgja þá sem fórust í slysinu og votta aðstandendum þeirra samúð okkar
Mikilvægt sé að aðstandendum sé gefinn kostur á að syrgja áður en umræða hefst um hvað fór úrskeiðis.
En svo í kjölfarið þá hlýtur þetta að kalla á umræðu um öryggismál sjómanna?
„Klárlega gerir það það og það kemur, engar áhyggjur af því. Það hefur oft verið bent á það á undanförum árum að það þurfi fleiri tæki til björgunar, sérstaklega til sjós, ég veit það bara, að nú fer þessi umræða í gang aftur og verður ennþá háværari og við munum láta heyra í okkur um þessi mál þegar við erum búin að jafna okkur og ég veit að nú verður hlustað betur á okkur.“
Sjómenn hafi auk Landhelgisgæslunnar um árabil gefið frá sér yfirlýsingar um öryggismál á hafi úti og stöðu þeirra. Slysið nú marki mikil tímamót, áratugir séu síðan svo margir hafi farist á sjó.
„Þetta er alveg hræðilegt bara og það eru komin meira en tuttugu ár síðan held ég að við misstum þrjá menn í einu í sjóslysi og það er náttúrulega bara ömurlegt og við vorum nú taldir hálfgerðir asnar að segja hérna 1990 og eitthvað, 98 eða 99, um aldamótin að stefna á að sjóslys á Íslandi yrðu núll.“
Stundum hafi verið sagt að það sé ekki hægt. Síðustu ár hafi undraverðum árangri verið náð með fræðslu.
„Það á að vera efst á stefnuskránni í þessum málum að þú átt að koma heill heim. Þannig á þetta að vera og þannig munum við reyna að hafa þetta áfram. Þegar svona skeður, þá er maður bara í sárum og gerir ekki annað heldur en að bara senda dýpstu samúðarkveðjur til þeirra sem eiga sárt að binda núna, bíðum með allt hitt, leyfum þessu að sjatna og förum svo í vinnuna eftir það.“