Dómstóll í Virginíuríki hefur sett bráðabirgðabann á fyrirhugað hliðstæðulyf Alvotech við Simponi og Simponi Aria. Það var lyfjarisinn Janssen sem fór fram á bannið en málið varðar einkaleyfi sem lýtur að síunarferli í framleiðslu. Hlutabréf í Alvotech féllu um rúmlega 11 prósent í kauphöllinni í morgun vegna tíðindanna.
Alvotech hefur áfrýjað úrskurðinum til æðri dómstóls og hefur óskað eftir flýtiferð. Í yfirlýsingu Alvotech segir að fyrirtækið sé sannfært um að það sé í rétti. Dómstóllinn fyrirskipaði Janssen að leggja fram tryggingu til að mæta því tjóni sem Alvotech verður fyrir vegna málaferlanna.