„Þau virðast máttvana. Útgerð Jökuls er lítil og atburðir gærkvöldsins snerta okkur öll djúpt. Hugur okkar er hjá skipverjum, fjölskyldum og öðrum aðstandendum. Fyrirtækið mun gera allt sem í þess valdi stendur til að aðstoða þau sem eiga um sárt að binda og veita alla þá aðstoð sem unnt er,“ segir í yfirlýsingunni sem birt var á Facebook fyrir stuttu.
Þar segir einnig að björgunaraðilar hafi unnið þrekvirki í gærkvöldi við mjög krefjandi aðstæður.
„Við færum öllum sem komu að málum okkar innilegustu þakkir.“
Að lokum segir að margar spurningar vakni við slíkan atburð og þau voni að því verði sýndur skilningur að það sá erfitt að svara þeim svo stuttu eftir atburðinn.
„Umfram allt þurfum við nú að hlúa að okkar fólki og þeim sem syrgja ástvini.“